Íslenski boltinn

Glæsi­mark fyrir­liðans kveikti í endur­komu Vestra

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Elmar Atli Garðarsson skoraði glæsilegt jöfnunarmark fyrir Vestra. 
Elmar Atli Garðarsson skoraði glæsilegt jöfnunarmark fyrir Vestra.  Vísir/Hulda Margrét

Vestri sótti 1-2 sigur gegn Ægi úr Þorlákshöfn í 4. umferð Lengjudeildar karla. Fyrirliðinn Elmar Atli Garðarson og framherjinn Ibrahima Balde tryggðu Vestra sigurinn.

Vestri hefur nú unnið tvo leiki í röð í Lengjudeildinni og er með 7 stig en Ægismenn eru enn í leit að sínum fyrstu stigum í deildinni í sumar. 

Ægir fagnaði hins vegar góðu gengi í bikarkeppninni í vikunni og sló út KA, á sama tíma og Vestri féll úr leik með skammarlegu tapi.  

Gestirnir frá Ísafirði voru hættulegri í fyrri hálfleik í dag en tókst ekki að skora.

Þvert gegn gangi fyrri hálfleiksins tók Ægir forystuna eftir fimmtán sekúndur í þeim seinni. Harley Willard var þar á ferðinni eftir langa sendingu upp völlinn.

Ægir átti síðan eftir að koma boltanum aftur í netið en mark Jordan Adeyemo var dæmt af vegna rangstöðu.

Þá var komið að Vestramönnum og þeim tókst að snúa leiknum sér í vil á aðeins fjögurra mínútna kafla.

Fyrirliðinn Elmar Atli skoraði glæsimark á 72. mínútu með skoti fyrir utan vítateig og framherjinn Ibrahima Balde skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins á 76. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×