Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Eiður Þór Árnason skrifar 15. maí 2026 18:04 Breytingar eru væntanlegar í borgarstjórn. Vísir/Vilhelm Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri.
RÚV greinir frá niðurstöðunum. Þar fær Sjálfstæðisflokkurinn átta fulltrúa í borgarstjórn og bætir við sig tveimur frá síðustu kosningum. Samfylkingin heldur sínum fimm fulltrúum en Vinstrið og Miðflokkurinn fá þrjá fulltrúa hvor. Viðreisn eykur fylgi sitt og fengi tvo borgarfulltrúa í stað eins. Sósíalistar mælast með einn en eru í dag með tvo. Þá fer Framsóknarflokkurinn úr fjórum fulltrúum í einn, samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Píratar missa alla sína þrjá fulltrúa og Flokkur fólksins mælist ekki inni en hann er með einn borgarfulltrúa í dag. Framboðin Góðan daginn og Okkar borg ná ekki heldur manni inn í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur gætu unnið með Viðreisn eða Framsókn Um er að ræða síðustu könnun Gallup fyrir kosningarnar en samkvæmt henni gætu Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn myndað eins manns meirihluta eftir kosningar. Einnig gæti Sjálfstæðisflokkur myndað meirihluta með Miðflokki og Viðreisn þar sem flokkarnir mælast með 13 af 23 sætum í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin gætu einnig unnið saman með sína þrettán borgarfulltrúa. Ekki er möguleiki á meirihluta til vinstri miðað við niðurstöður könnunarinnar. Samfylkingin, Vinstrið, Sósíalistar og Viðreisn mælast samanlagt með ellefu borgarfulltrúa og vantar einn til að mynda meirihluta. Oddviti Framsóknar hefur útilokað samstarf með Samfylkingunni eftir kosningar. Niðurstöðurnar eru úr net- og símakönnun sem Gallup gerði dagana 11. til 15. maí, að því er fram kemur í frétt RÚV. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Gallup en úrtakið í símakönnuninni tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Heildarúrtaksstærð var 3.587 manns og náði til einstaklinga átján ára og eldri með lögheimili í Reykjavík. Þátttökuhlutfall var 41,3%. Fréttin hefur verið uppfærð.
Skoðanakannanir Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Viðreisn Samfylkingin Flokkur fólksins Píratar Sósíalistaflokkurinn Vinstrið Okkar borg Góðan daginn Tengdar fréttir Hnífjafnt til hægri og vinstri Kjósendur í Reykjavík eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort myndaður verði meirihluti til hægri eða vinstri að kosningum loknum, ef marka má nýja könnun Maskínu. 50,7 prósent vilja meirihluta frá miðju til vinstri en 49,3 prósent vilja meirihluta frá miðju til hægri. Meirihluti kjósenda Viðreisnar vill samstarf til vinstri. 15. maí 2026 11:42 Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Sjálfstæðisflokkurinn er enn með yfirburði í nýuppfærðri kosningaspá Vísis fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík en hreyfing á fylgi virðist hafa stöðvast. Engar markverðar breytingar eru á líkum frambjóðenda að ná kjöri. 14. maí 2026 11:03 Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 28 prósenta fylgi og er stærstur flokka samkvæmt nýrri könnun Maskínu um fylgi flokka í Reykjavík. Fylgi Samfylkingar og Miðflokks eykst á milli kannana en fylgi Vinstrisins og Sósíalista dregst saman. 13. maí 2026 20:26 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira
Hnífjafnt til hægri og vinstri Kjósendur í Reykjavík eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort myndaður verði meirihluti til hægri eða vinstri að kosningum loknum, ef marka má nýja könnun Maskínu. 50,7 prósent vilja meirihluta frá miðju til vinstri en 49,3 prósent vilja meirihluta frá miðju til hægri. Meirihluti kjósenda Viðreisnar vill samstarf til vinstri. 15. maí 2026 11:42
Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Sjálfstæðisflokkurinn er enn með yfirburði í nýuppfærðri kosningaspá Vísis fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík en hreyfing á fylgi virðist hafa stöðvast. Engar markverðar breytingar eru á líkum frambjóðenda að ná kjöri. 14. maí 2026 11:03
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 28 prósenta fylgi og er stærstur flokka samkvæmt nýrri könnun Maskínu um fylgi flokka í Reykjavík. Fylgi Samfylkingar og Miðflokks eykst á milli kannana en fylgi Vinstrisins og Sósíalista dregst saman. 13. maí 2026 20:26