Skemmdarvargarnir skildu eftir „manifestó“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. maí 2026 12:00 Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir starfsfólk miður sín. Vísir/Vilhelm Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi. „Eignatjónið er kannski aukaatriði í þessu, en að skapa svona aðstæður og skemma umhverfi dýranna og valda þeim þjáningu og sársauka, það er ófyrirgefanlegt,“ segir Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss. Hann segir að þeir telji að brotist hafi verið inn um nóttina á milli eitt og tvö. Í tilkynningu frá Stjörnugrís í morgun kom fram að verksummerki bendi til þess að brotið hafi verið framið undir yfirskini dýravelferðar. Geir segir að bréf hafi verið skilið eftir á vettvangi sem gefið hafi þetta til kynna. Hvað kom fram í þessu bréfi? „Þetta var eitthvað manifestó. Lögreglan er með þetta bréf, en ég tjái mig ekki um það hvað stóð í því á þessu stigi málsins,“ segir Geir sem bætir því þó við að engar kröfur hafi verið lagðar fram í bréfinu. Geir segir að öryggisgæsla á svæðinu verði alfarið endurmetin, en hún hafi hingað til verið lítil sem engin. „Þetta er náttúrulega nýr veruleiki sem er kominn upp og menn hafa áhyggjur af þessari þróun, bæði bændur og búalið og jafnvel fleira og að sjálfsögðu munum við bregðast við í framhaldi. Það er greinilega ekki nóg að hafa læstar hurðir og tryggja þannig öryggið, það þarf að vera eitthvað annað sem kemur til, því miður.“ Hann segir ljóst að innbrotið muni valda fyrirtækinu töluverðu tjóni á næstunni. „Þetta á náttúrulega eftir að koma í ljós á næstu dögum og vikum hvaða áhrif þetta hefur vegna þess að þegar er farið inn í svona bú og sköpuð þvílík ringulreið og gengið á öryggi dýranna, þá mun það hafa áhrif á framleiðsluna á næstu vikum.“ Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Reykjavík Dýr Matvælaframleiðsla Lögreglumál Mest lesið Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Innlent Myndataka í lágloftunum vekur athygli Innlent Fleiri fréttir Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Sjá meira
„Eignatjónið er kannski aukaatriði í þessu, en að skapa svona aðstæður og skemma umhverfi dýranna og valda þeim þjáningu og sársauka, það er ófyrirgefanlegt,“ segir Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss. Hann segir að þeir telji að brotist hafi verið inn um nóttina á milli eitt og tvö. Í tilkynningu frá Stjörnugrís í morgun kom fram að verksummerki bendi til þess að brotið hafi verið framið undir yfirskini dýravelferðar. Geir segir að bréf hafi verið skilið eftir á vettvangi sem gefið hafi þetta til kynna. Hvað kom fram í þessu bréfi? „Þetta var eitthvað manifestó. Lögreglan er með þetta bréf, en ég tjái mig ekki um það hvað stóð í því á þessu stigi málsins,“ segir Geir sem bætir því þó við að engar kröfur hafi verið lagðar fram í bréfinu. Geir segir að öryggisgæsla á svæðinu verði alfarið endurmetin, en hún hafi hingað til verið lítil sem engin. „Þetta er náttúrulega nýr veruleiki sem er kominn upp og menn hafa áhyggjur af þessari þróun, bæði bændur og búalið og jafnvel fleira og að sjálfsögðu munum við bregðast við í framhaldi. Það er greinilega ekki nóg að hafa læstar hurðir og tryggja þannig öryggið, það þarf að vera eitthvað annað sem kemur til, því miður.“ Hann segir ljóst að innbrotið muni valda fyrirtækinu töluverðu tjóni á næstunni. „Þetta á náttúrulega eftir að koma í ljós á næstu dögum og vikum hvaða áhrif þetta hefur vegna þess að þegar er farið inn í svona bú og sköpuð þvílík ringulreið og gengið á öryggi dýranna, þá mun það hafa áhrif á framleiðsluna á næstu vikum.“ Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Reykjavík Dýr Matvælaframleiðsla Lögreglumál Mest lesið Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Innlent Myndataka í lágloftunum vekur athygli Innlent Fleiri fréttir Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Sjá meira