Kosningavökur flokkanna: Hótel, veislusalir og einn leynistaður Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. maí 2026 07:01 Stemmingin á kosningavökum flokkanna mun væntanlega velta á niðurstöðunum. Sveitarstjórnarkosningar eru á laugardaginn og eftir margra vikna átök nálgast kosningabaráttan hápunkt sinn, kosningakvöldið sjálft. Kosningavökur eru yfirleitt skemmtilegustu partýin þó stemmingin velti auðvitað á uppskerunni.
Flokkarnir halda kosningavökur um allt land en stærstu teitin verða þó í höfuðborginni þar sem spennan er einna mest. Flokkarnir fara ólíkar leiðir í vali á stöðum fyrir kosningavökurna, veislusalir hótela eru vinsælir sem og samkomusalir og svo nýta aðrir eigin húsnæði. Hér fyrir neðan ber að líta lista yfir kosningavökur flokkanna í Reykjavík á laugardagskvöld. Stjórnmálaflokkurinn Okkar borg - þvert á flokka sker sig úr hópnum og gefur ekki upp nákvæma staðsetningu. Flokkur fólksins - Fjörgyn í Grafarvogskirkju Flokkur fólksins hefur gegnum tíðina haldið kosningavöku sína í höfuðstöðvum sínum í salnum Fjörgyn á neðri hæð Grafarvogskirkju. Það er ekki breyting þar á í ár. Skrifstofa Flokks fólksins er í salnum Fjörgyn í Grafarvogskirkju.Vísir/Vilhelm Framsóknarflokkurinn - Ský bar Framsóknarflokkurinn í Reykjavík heldur kosningavöku sína á barnum Ský sem er á áttunda hæð Center Hotels Arnarhvoll við Ingólfsstræti 1. Útsýnið af Ský bar er ansi gott.Ský bar Góðan daginn - Hótel Eyja Yngsta framboðið, Góðan daginn, heldur kosningavöku sína í veislusal Hótels Eyju á Brautarholti 10. Frumlegt og spennandi val. Hótel Eyja er í Brautarholtinu. Miðflokkur - Hótel Borg Miðflokkurinn heldur sameiginlega kosningavöku fyrir allt höfuðborgarsvæðið á Hótel Borg. Það verður því væntanlega margt um manninn. Miðflokksmenn fylgjast með niðurstöðum kosninganna á Hótel borg.Vísir/Vilhelm Okkar borg - Leynilegur staður Samkvæmt svörum frá framboðinu Okkar borg - þvert á flokka til fréttastofu verður kosningavaka þess „á leynistað“. Þeir sem hafa í hyggju að heimsækja allar kosningavökurnar þetta kvöldið verða því annað hvort að þefa leynistaðinn uppi eða hringja í framboðið. Píratar - Tunglið Píratar halda kosningavöku sína í veislusalnum Tunglinu á Lækjargötu frá klukkan 20 til 1 um nóttina. „Gott aðgengi og drykkir í boði á meðan birgðir endast,“ segir í lýsingu Pírata á viðburðinum. Píratar verða í Tunglinu. Samfylking - Austurbæjarbíó Samfylkingin verður með kosningavöku sína í Austurbæjarbíói á Snorrabraut. Samfylkingin í Reykjavík hélt kosningavökuna árið 2018 líka í Austurbæjarbíói og náði þá rúmum 25 prósentum - flokkurinn vonast eftir svipuðum niðurstöðum í ár. Sjálfstæðisflokkur - Sjálfstæðissalurinn Sjálfstæðismenn verða á hárréttum stað ef miðað er við nafnið, í Sjálfsstæðissalnum á Parliament Hotel við Austurvöll. Þeir voru líka þar í síðustu Alþingiskosningum og virðast una sér vel þar. Sjálfstæðissalurinn er einkar glæsilegur. Sósíalistar - Félagsheimili Sósíalistaflokksins Sósíalistar fara svipaða leið og Flokkur fólksins og halda kosningavöku sína i félagsheimili flokksins á Hverfisgötu 105. Þetta þarf ekki alltaf að vera flókið, partý í heimahúsi eru oft bestu partýin. Sósíalistar fagna í félagsheimili sínu á Hverfisgötu. Viðreisn- Kolaportið Viðreisn heldur kosningavöku sína í Kolaportinu á Tryggvagötu frá klukkan 20 til miðnættis. Samfylkingin hélt kosningavöku sína þar í síðustu Alþingiskosningunum og uppskar ríkulega, spurning hvað Björg og félagar fá upp úr kössunum. Kolaportið hefur verið rekið í Tollhúsinu síðastliðin tuttugu ár.Vísir/Sigurjón Vinstrið - Tónabíó Kosningavaka Vinstrisins verður í Tónabíói í Skipholti þar sem er nýlega búið að endurvekja gamla tónleikasalinn til ýmiss konar viðburðahalds. Fyrr á árinu var Tónabíó gert upp og hefur sjaldan litið betur út.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Flokkur fólksins Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Góðan daginn Píratar Okkar borg Viðreisn Vinstrið Vor til vinstri Vinstri græn Sósíalistaflokkurinn Mest lesið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira