Má bjóða þér hærri álögur í Reykjavík? Eva Þorsteinsdóttir skrifar 6. maí 2026 15:31 ,,Brýnt er að það náist að mynda meirihluta sem einblínir á ráðdeild í rekstri, að minnka yfirbygginguna og lækka álögur á borgarbúa, ekki síst í ljósi aðstæðna í efnahagslífinu.” Svona hljóðar inngangur leiðara Viðskiptablaðsins þann 3. maí síðastliðinn vegna fyrirsagnar í fréttatilkynningu Reykjavíkurborgar, þar sem slegið var upp fyrirsögninni ,,Áframhaldandi sterk staða Reykjavíkurborgar” vegna rekstrarniðurstöðu borgarinnar fyrir síðasta ár. En er það raunin eða eru þetta bókhaldsbrellur? A-hluti borgarinnar var rekinn með 5,3 milljarða halla í fyrra. Árið áður hafði hann verið rekinn með 4,7 milljarða afgangi og versnaði því afkoman um 10 milljarða milli ára. Í A- og B- hluta saman var rekstrarniðurstaða jákvæð um 8 milljarða. Er það ekki gott mál myndu sumir spyrja og einfalt svar væri, jú vissulega. En ástæðan er ekki svo einföld þegar betur er að gáð. Reykjavíkurborg notar nefnilega virðishækkun á félagslegu íbúðunum sínum til að fegra niðurstöðuna. Hvernig er það gert. Jú með því að uppfæra verðgildi íbúða í félagslega kerfinu sem stendur engan veginn til að selja eins og ef um fjárfestingareign væri um að ræða. Það má einnig taka fram að borgin ætlar sér að fjölga þessum íbúðum talsvert næstu árin og er búin að skuldbinda sig að veita 513 milljónum í eiginfjárframlag á hverju ári næstu 3 árin. Þetta myndi kallast að slá ryki í augu almennings til að líta betur út á pappír. Skuldir hafa vaxið gríðarlega! Undir stjórn Samfylkingarinnar hafa skuldir borgarsjóðs, svokallaðs A-hluta hækkað úr 80 milljörðum í 221 milljarð frá árinu 2015 eða um 78%, þrátt fyrir að tekjur borgarsjóðs hafi vaxið um 47% á raunvirði þennan sama tíma. Vandinn virðist því vera rekstrarvandi en ekki tekjuvandi. Að forgangsraða peningum í ákveðin gæluverkefni til að geta dyggðarflaggað sjálfum sér á kostnað þeirra forgangsverkefna að sinna grunnskyldum sínum gagnvart borgarbúum. Vissulega er ekki eins ,,sexý” að sópa götur eða ryðja, lagfæra gangstéttar eða skipta út ljósaperum eins og að kaupa kynlífstækjabúð á yfirverði og breyta í leikskóla. Leikskóla sem kostar borgarbúa nú orðið 4 milljarða og er enn ekki kominn í notkun. Orkuveitan, mjólkurkú Samfylkingarinnar Borgin hefur iðullega líka sótt sér arð í borgarfyrirtækin. Þessar upphæðir nema um 41,5 milljarð frá árunum 2015-2025. Orkuveitan hefur gefið mest, eða um 37,8 milljarða króna. Á sama tíma hafa skuldir Orkuveitunnar hækkað um 55 milljarða, sem þýðir í praktík að Orkuveitan er búin að vera að taka lán fyrir arðgreiðslum borgarinnar! Á sama tíma er Orkuveitan komin í mikla innviðaskuld og þarf á næstu árum að ráðast í kostnaðarsamar fjárfestingar og framkvæmdir til að svara vaxandi þörf samfélagsins. Það verður gert með gjaldskrárhækkunum á neytendur næstu misserin. Er þetta það sem borgarbúar kalla eftir, eða vilja þeir breytingar á rekstri? Í Sveitastjórnarkosningum 16. maí hefur þú kjósandi góður val um hverja þú vilt fá til að stjórna borginni betur. Viltu að útsvarið þitt fari í að gera borgina betri í rekstri, eða halda áfram að sturta peningum í verkefni sem gagnast fáum ef nokkrum, og hækka álögur á sjálfan þig í leiðinni? Tækifærið er núna. Miðflokkurinn ætlar að bjarga borginni fyrir þig og er með hæfasta manninn í verkið til að snúa við þessu við. Ari Edwald hefur sýnt það í sínum fyrri störfum að hann kann að reka stórfyrirtæki vel,og veit hvað þarf til í þeim efnum. Ætlunin er að lækka útsvar á borgarbúa, ekki að hækka það! Höfundur er frambjóðandi Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
,,
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar