Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. maí 2026 22:58 Jared Isaacman er milljarðamæringur og æðsti yfirmaður Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna. EPA Jared Isaacman, æðsti yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), vill að Plútó verði skilgreind sem reikistjarna á ný. Næstum tveir áratugir eru liðnir síðan að himintunglið var svipt titlinum. Það var í ágúst árið 2006 sem 2500 stjörnufræðingar frá 75 löndum komu sér saman um nýja skilgreiningu á reikistjörnu sem útilokaði Plútó sem þá var talin níunda reikistjarnan. Ákveðið var að endurskoða skilgreininguna eftir að hnöttur fannst talsvert lengra frá sólinni en Plútó og var hann nokkuð stærri en dvergreikistjarnan. Sjá nánar: Plútó er ekki lengur ein reikistjarnanna Það var fyrst í viðtali við blaðamann Daily Mail sem Isaacman sagði að „gera ætti Plútó að reikistjörnu á ný“ og var hann þar að taka undir orð Trumps. Himinhnettir þurfa að uppfylla þrjú skilyrði til að teljast reikistjörnur: 1. Vera á braut um sólina 2. Hafa nægilegan þyngdarkraft til að vera því sem næst hnattlaga 3. Hafa fjarlægt allt efni í næsta nágrenni við braut sína Hann ítrekaði orð sín á þingfundi öldungadeildar Bandaríkjanna í vikunni en þar var fjárhagsáætlun Geimvísindastofnunarinnar til umræðu sem felur í sér verulegan niðurskurð samkvæmt USA Today. Jerry Morgan, öldungadeildarþingmaður Repúblikana, greip tækifærið og spurði Isaacman út í Plútó. „Ég er mjög fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu,“ svaraði Isaacman. „Við myndum gjarnarn vilja opna á þessa umræðu á ný í vísindasamfélaginu.“ Isaacman tók við stöðu yfirmanns NASA eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði hann í embættið í desember 2025. Hann er milljarðamæringur og mikill áhugamaður um geiminn en hann var einn þeirra sem fóru í fyrstu borgaralegu geimgönguna í fyrra. Bandaríkin Geimurinn Plútó Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira
Það var í ágúst árið 2006 sem 2500 stjörnufræðingar frá 75 löndum komu sér saman um nýja skilgreiningu á reikistjörnu sem útilokaði Plútó sem þá var talin níunda reikistjarnan. Ákveðið var að endurskoða skilgreininguna eftir að hnöttur fannst talsvert lengra frá sólinni en Plútó og var hann nokkuð stærri en dvergreikistjarnan. Sjá nánar: Plútó er ekki lengur ein reikistjarnanna Það var fyrst í viðtali við blaðamann Daily Mail sem Isaacman sagði að „gera ætti Plútó að reikistjörnu á ný“ og var hann þar að taka undir orð Trumps. Himinhnettir þurfa að uppfylla þrjú skilyrði til að teljast reikistjörnur: 1. Vera á braut um sólina 2. Hafa nægilegan þyngdarkraft til að vera því sem næst hnattlaga 3. Hafa fjarlægt allt efni í næsta nágrenni við braut sína Hann ítrekaði orð sín á þingfundi öldungadeildar Bandaríkjanna í vikunni en þar var fjárhagsáætlun Geimvísindastofnunarinnar til umræðu sem felur í sér verulegan niðurskurð samkvæmt USA Today. Jerry Morgan, öldungadeildarþingmaður Repúblikana, greip tækifærið og spurði Isaacman út í Plútó. „Ég er mjög fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu,“ svaraði Isaacman. „Við myndum gjarnarn vilja opna á þessa umræðu á ný í vísindasamfélaginu.“ Isaacman tók við stöðu yfirmanns NASA eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði hann í embættið í desember 2025. Hann er milljarðamæringur og mikill áhugamaður um geiminn en hann var einn þeirra sem fóru í fyrstu borgaralegu geimgönguna í fyrra.
Himinhnettir þurfa að uppfylla þrjú skilyrði til að teljast reikistjörnur: 1. Vera á braut um sólina 2. Hafa nægilegan þyngdarkraft til að vera því sem næst hnattlaga 3. Hafa fjarlægt allt efni í næsta nágrenni við braut sína
Bandaríkin Geimurinn Plútó Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira