Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Birgir Olgeirsson skrifar 29. apríl 2026 21:45 Að sögn Davíðs Torfa Ólafssonar, forstjóra Íslandshótela, er stefnt að umfangsmikilli endurnýjun á hótelunum tveimur á næstu árum. Lýður Íslandshótel taka 1. september 2026 við rekstri tveggja af þekktari hótelum Reykjavíkur, þeirra sem hingað til hafa verið rekin undir nöfnunum Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samningur félagsins við fasteignafélagið Reiti, sem á húsin, gildir í rúm sautján ár og nær því hið minnsta fram til ársins 2043.
Með því lýkur jafnframt rekstri Berjaya Hotels Iceland á hótelunum tveimur. Malasíska félagið keypti reksturinn af Icelandair Group árið 2019 en stígur nú til hliðar þegar nýr leigutaki tekur við. Á hótelunum tveimur eru samtals 471 herbergi og með yfirtökunni stækka Íslandshótel rekstur sinn verulega í Reykjavík. Fyrirtækið rekur fjölda hótela víða um land en viðbótin styrkir stöðu þess enn frekar á höfuðborgarsvæðinu. Íslandshótel taka 1. september 2026 við rekstri hótelsins við Suðurlandsbraut, sem hefur verið rekið undir merkjum Hilton Reykjavík Nordica, og hyggjast ásamt Reitum ráðast í umfangsmiklar endurbætur á næstu árum.Vilhelm Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, segir yfirtökuna hafa mikið vægi fyrir félagið. „Við erum auðvitað í dag að starfrækja um 2.000 herbergi og nú bætast við 471 herbergi. Og það bara skiptir okkur miklu máli og svona eykur okkar styrk.“ Allt starfsfólk verður ráðið aftur Eitt stærsta atriðið við eigendaskiptin er staða starfsfólksins. Um 300 manns starfa á hótelunum tveimur í dag og samkvæmt Íslandshótelum verður allt það fólk ráðið til starfa á ný þegar félagið tekur við rekstrinum í september á næsta ári. Reykjavík Natura við Nauthólsveg er annað þeirra hótela sem skipta um rekstraraðila í haust þegar Íslandshótel taka við af Berjaya Hotels Iceland.Vilhelm „Við munum ráða allt fólk til okkar þannig að það er bara svo að ef við tökum af allan vafa þá mun starfsfólkið, við munum ráða það til okkar," segir Davíð Torfi. Það er stór þáttur í yfirtökunni enda hafa bæði hótelin gegnt mikilvægu hlutverki í ráðstefnu-, gisti- og veitingarekstri í Reykjavík um langt árabil og byggt upp reynslumikið starfsfólk á fjölmörgum sviðum. Hilton verði áfram á Suðurlandsbraut Enn er ekki frágengið undir hvaða nöfnum hótelin tvö verða rekin þegar Íslandshótel taka við. Þó er gert ráð fyrir að húsið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum Hilton-keðjunnar. Óvissa er hins vegar enn um endanlega nafngift á hótelinu við Nauthólsveg. Samkvæmt Davíð er félagið nú að vinna í þeirri útfærslu samhliða undirbúningi fyrir yfirtökuna. Rekstrargrunnurinn verði þó að mestu sá sami, það er hótelgisting, veitingarekstur, barir og önnur þjónusta sem fyrir er á stöðunum. Horfa lengra en til yfirtökudagsins Að sögn Davíðs sýnir samningstíminn að félagið horfi bjartsýnum augum til íslenskrar ferðaþjónustu þrátt fyrir sveiflur sem iðnaðurinn hefur gengið í gegnum undanfarin ár. „Við erum búin að vera í þessum bransa í meira en 30 ár og við höfum alltaf haft góða trú á íslenskri ferðaþjónustu og munum gera það áfram.“ Þriggja milljarða endurbætur á næstu þremur árum Samhliða yfirtökunni ætla Íslandshótel og Reitir að ráðast í stórar endurbætur á báðum hótelum. Áætlað er að verja um þremur milljörðum króna í verkefnið á næstu þremur árum. Um verður að ræða víðtæka endurnýjun, ekki aðeins á herbergjum heldur einnig á sameiginlegum rýmum, móttöku, börum, veitingasvæðum og annarri aðstöðu. Markmiðið er að lyfta hótelunum tveimur verulega og styrkja samkeppnisstöðu þeirra til lengri tíma. Davíð segir framkvæmdirnar löngu tímabærar. „Við munum endurnýja þarna öll herbergi og öll bara rými, veitingarými, hótelrými önnur, móttaka, bar og annað slíkt. Þannig að þetta verður allt endurnýjað.“ Þegar hann er spurður hvort þar verði um að ræða einhver flottustu hótel landsins eftir breytingarnar svarar hann: „Verða það, alveg klárt.“
Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Íslandshótel Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira