Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. apríl 2026 15:37 Penninn þurfti að greiða hundruði þúsunda fyrir að selja myndirnar af Tinna á Íslandi. Samsett Penninn þarf að greiða rúmar sjö hundruð þúsund krónur fyrir að hafa selt verk sem sýna teiknimyndapersónuna Tinna á Íslandi. Eigandi höfundarréttar söguheims Tinna krafðist milljóna vegna sölunnar.
SA Tintinimagiantio, félag sem er á réttinn að myndverkum eftir Hergé sem myndskreytti Tinna-bækurnar, höfðaði mál gegn Pennanum fyrir að selja verk Óskars Guðmundssonar. Myndir Óskars sýna persónuna Tinna og aðrar sögupersónur úr teiknimyndasögum Hergé um ævintýri Tinna á Íslandi. Til dæmis á einni myndinni standa Tinni og Kolbeinn kapteinn fyrir framan Hallgrímskirkju. Myndirnar voru til sýnis í Epal Gallerí árið 2022. Tíu myndir voru til sölu í verslunum Pennans árin 2022 til 2024 og seldust 522 eintök. SA Tintinimagiantio krafðist þess að Penninn myndi greiða þeim tæpar fimm milljónir króna fyrir söluna á verkunum og að dómurinn yrði birtur í prentriti Morgunblaðsins. Penninn krafðist þess fyrst og fremst að fyrirtækið yrði sýknað af öllum kröfunum. Tekið er fram að SA Tintinimagiantio hafði þegar haft samband við annað íslenskt fyrirtæki sem seldi umræddar myndir og þau gert með sér samkomulag sem fól í sér bótagreiðslu vegna notkunarinnar. Félagið hafði einnig samband við Pennann með slíkt í huga, sendi loks kröfubréf en fékk engin svör. Málið var tekið fyrir af Héraðsdómi Reykjavíkur og dómurinn birtur 22. apríl 2026. Málið var þó fyrst höfðað í maí árið 2025. Féllust ekki á rök Pennans Báðir aðilar eru sammála um að við gerð myndanna hafi Óskar notað teiknimyndasögur Hergé sem efnivið og að félagið eigi höfundarréttinn að teiknimyndapersónunum úr söguheimi Tinna. Dómurinn hafnaði helstu málsástæðum Pennans, ekki væri hægt að segja að myndirnar hafi verið skopstæling né féllu myndirnar undir höfundarréttarlög sem kveða á um heimild til að nota vernduð verk á leyfis. Þá væru myndirnar ekki eins konar tilvitnun þar sem verkin voru seld fyrir hagnað. Að lokum taldi dómurinn að tjáningarfrelsi listamanna gæti ekki haggað fjárhagslegum einkaréttindum höfunda. Penninn var því dæmdur til þess að greiða SA Tintinimagiantio rúmar 716 þúsund krónur fyrir söluna á myndunum auk málskostnaðar. Bæturnar voru miðaðar við raunverulegan hagnað Pennans af sölunni.
Dómsmál Höfundar- og hugverkaréttur Bókmenntir Myndlist Verslun Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira