„Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar 17. apríl 2026 10:30 Ég starfa sem verkefnastjóri í grunnskóla og hef verið kennari í 20 ár. Á þeim tíma hef ég séð ýmsar breytingar í skólastarfi, sumar góðar og aðrar sem hafa kallað á mikla aðlögun. Þegar ég hóf kennslu voru gefnar einkunnir í tölum. Síðar kom sú ákvörðun frá menntamálaráðuneytinu að taka upp bókstafaeinkunnir með matsviðmiðum. Sú breyting kom ofan frá og við í grunnskólunum höfðum lítið um hana að segja. Innleiðingin reyndist krefjandi og mikill tími fór í að vinna úr kerfi sem við fengum takmarkaðan stuðning við að tileinka okkur. Ég viðurkenni að ég var efins í fyrstu. En með samvinnu við aðra kennara tókst okkur smám saman að ná tökum á þessu. Í því ferli fór ég að sjá kosti matsviðmiðanna. Þau neyddu okkur til að staldra við og spyrja: Hvers vegna erum við að kenna þessa hæfni? Hvað á nemandinn að geta þegar hann hefur tileinkað sér hana? Þessi nálgun breytti minni kennslu. Ég þurfti að útskýra betur fyrir nemendum tilgang námsins og hvernig þeir gætu nýtt sér það í framtíðinni. Þar liggur kjarninn: Þetta snýst ekki fyrst og fremst um einkunnina, heldur um ferlið og þá hæfni sem nemandinn byggir upp. Fyrir mér skiptir því ekki höfuðmáli hvort við notum tölur eða bókstafi. Það sem skiptir máli er að matsviðmið séu skýr og styðji við nám nemenda. Það sem veldur mér hins vegar áhyggjum í umræðunni núna er tónninn. Þegar stjórnvöld tala til kennara í boðhætti, án raunverulegs samráðs, skapast fjarlægð í stað samstarfs. Ég upplifi ekki að verið sé að vinna með okkur sem störfum í skólunum. Gott skólastarf byggir á trausti og samvinnu. Það má líkja því við hjónaband: Ef annar aðilinn tekur ákvarðanir einhliða og talar niður til hins, eru litlar líkur á að sambandið dafni. Nú virðist enn á ný vera verið að taka ákvarðanir um grunnskólann án þess að leita nægilega til fagfólksins sem starfar þar daglega. Ég er sannfærð um að flestir kennarar eru tilbúnir að taka þátt í umbótum — enda viljum við öll það sama: að nemendum okkar vegni vel. Það er margt sem má bæta í menntakerfinu. En það er líka margt sem vel er gert. Ef við ætlum að ná árangri þurfum við að byggja á því sem fyrir er og þróa það áfram í sameiningu. Árangur næst ekki með yfirlýsingum á borð við: „Ég er menntamálaráðherra og ég ræð.“ Höfundur er verkefnastjóri í grunnskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar