Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar 10. október 2026 10:00 Tóm-stunda-iðja er fallegt orð. Það þýðir í raun það sem við gerum þegar við erum ekki með neinar skyldur eða eigum tóma- stund. Það er ákveðin iðkun í sjálfu sér að dvelja í tómri stund. Hvað gæti gerst ef ég sit bara ein með sjálfri mér ekki með neinn síma, skyldur, markmið, verkefni eða neitt. Gæti verið að alls konar tilfinningar sem fá aldrei að komast að, kíki í heimsókn, kannski gömul sorg sem var ekki sinnt, kvíðinn sem við höfum alltaf reynt að breiða yfir, söknuður sem við sópuðum undir teppi, einmannaleikinn sem við skömmumst okkar fyrir eða bara gleðin og þakklætið sem við erum of upptekin til að taka eftir. Tómstundaiðja okkar nútímafólksins er oft orðin stund þar sem við erum að deila öllu á samfélagsmiðlum…eins og mamman sem vildi eiga skjálausa spilastund með barninu sínu og tók mynd af spilamennskunni og deildi því á instagram. Þá í raun ekki tóm-stund heldur full-stund. Tengjumst heimum en af-tengjumst okkur sjálfum Við erum sjúk sem samfélag eða heimur í að hlaða hverja stund af áreiti svo mikið að við vanrækjum merki líkamans um svengd, þreytu, verki eða bara þörf til að anda. Þegar við förum í fríi kunnum við ekki að slaka á og setjum okkur dagskrá til að okkur leiðist nú örugglega ekki. Streita er eitthvað sem við þekkjum svo mörg og erum orðin háð ,,æ við verðum vitlaus af því að sitja heima og gera ekki neitt”. Er það rétt að við verðum vitlaus eða er óþægilegt að mæta tilfinningum okkar á tómri stundu. Drifkerfi taugakerfisins (e. sympatic neurvous system) telur okkur trú um að við þurfum alltaf að vera í viðbragðsstöðu að berjast eða flýja. Alltaf að vera á vaktinni hvað sé að gerast í heiminum meðan við hunsum það sem er að gerast innra með okkur. Við viljum vera tengd öllum heiminum en aftengd því sem er fyrir framan nefið á okkur eða öllu heldur innra með okkur. VIð horfum á sjónvarpið meðan við spjöllum við vini á samfélagsmiðlum eða skoðum hvernig klósettrúllustand við eigum að fá okkur samkvæmt meðmælum á netinu. Reykskynjari á yfrsnúningi Streitu hormón eru nauðsynleg svo við getum brugðist við hættu. Þegar hættan er liðin hjá minnka streituhormónin undir eðlilegum kringumstæðum. Hjá fólki með áfallastreitu vara streituhormónin miklu lengur og snar aukast við minnsta áreiti. Þekktu streituviðbrögðin eru að berjast eða flýja en einnig er þekkt viðbragð að afneita hættunni. Þegar hugurinn hunsar skilaboðin frá tilfinninga heilanum halda streituhormónin áfram að senda skilaboð til vöðvana um að spennast upp og líkaminn geymir áfallið þó heilinn afneiti því. Heilinn verður eins og reykskynjari á yfirsnúningi og fólk er undir ofurálagi skynjunar (Bessel Van Der Kolk, 2023). Að kynnast sjálfum sér Jafnvægi kemst á þegar við náum að vingast við innri upplifanir t.d. ,,ég finn kvíðann núna, áhugavert” eða ,,ég er kvíðin og glöð á sama tíma, það má vera þannig, ég dæmi ekki sjálfan mig fyrir það”. Hvers konar íhugun eins og göngutúr í náttúrunni, meðvituð öndun, að sitja og horfa á fallegt útsýni og leggja hönd á hjartastað eru nokkrar af fjölmörgum leiðum til að eiga tóma stund með sjálfum okkur og tengjast innri líðan. Leiðin til að ná þessu er ekki alltaf einföld og fólk getur þurft stuðning fagfólks til að komast á þann stað að njóta tómrarstundar. Við getum líka tekið meðvituð skref í að lækka tíðnina í lífinu, einfalda lífið, lágmarka áreitið, sleppa því að senda vinnupóstinn að kvöldi til, geyma símann fyrir utan svefnherbergið, eyða út óþarfa öppum, segja nei víð því sem þjónar okkur ekki lengur. Undirrituð er alls ekki með allt þetta á hreinu en þetta er allt verk í vinnslu. Endilega ekki eyða tíma að ræða þessa grein á netinu, farið frekar að búa til rými fyrir tóm-stund í tilefni af alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 10. Október. Höfundur er iðjuþjálfi og foreldra- og uppeldisfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Halldór 10.10.2026 Halldór Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego Skoðun
Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir Skoðun