Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar 16. apríl 2026 15:32 Inga Sæland hélt ræðu á þingi Kennarasambands Íslands í gær sem skildi salinn eftir í nokkru uppnámi. Hún hóf mál sitt á að segja formanni KÍ að vera stilltur. Svo sagði hún að árangur nemenda væri ófullnægjandi og að 60% þeirra gætu ekki lesið sér til gagns. Mikill fjöldi nemenda kæmist ekki áfram í langskólanámi og ótækt væri að þeim liði illa. Hér væru líka of fáar kennslustundir. Hún ætlar að bjarga þessu: Tileinka þetta ár læsi. Ekki fylgdu frekari skýringar. Bjóða nemendum að semja reglur sem tryggja símafrí. Hún hafði hitt finnska menntamálaráðherrann í Eistlandi sem sagði henni að þar liði öllum vel eftir að símafrí komst á. Hún upplýsti fundargesti um að maður gæti tekið mark á því sem gerðist í Eistlandi því það væri ekki rykugt austantjaldsland. Hafa meiri námsaðgreiningu. Kenna t.d. á einu tungumáli í einni stofu og öðru í þeirri næstu. Leyfa foreldrum að fá próf barna sinna heim og færa námsmat aftur í tölur. Hún hefur heyrt óskir um þetta frá foreldrum og henni er ljúft og skylt að hlusta frekar á þá en kennara. Inga tók samt fram að hún bæri mikla virðingu fyrir kennurum og þeirra starfi. Hún vill gjarnan vinna hlutina með þeim. Mörgum fundargestum fannst vanta betri útskýringar hér. Hvernig ætlar Inga að sýna þetta í verki? Inga vildi líka hrósa kennurum og áréttaði að í Pisa kæmi fram að nemendum líði vel í samanburði þjóða. Þetta sagði hún eftir að hafa eytt miklum tíma í að ávarpa vanlíðan og vandræði nemenda. Fundargestir voru slegnir og fannst að fagmennskunni vegið. Málflutningurinn einkenndist af upphrópunum og einföldum lausnum á flóknum verkefnum. Sumir gengu út, sumir klöppuðu ekki, aðrir klöppuðu smá. Hún gekk út að þessu loknu, sá ekki ástæðu til að sitja á þingi, enda búin að segja sitt. Höfundur er þingfulltrúi á Ársþingi KÍ, skólastjóri og formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Inga Sæland hélt ræðu á þingi Kennarasambands Íslands í gær sem skildi salinn eftir í nokkru uppnámi. Hún hóf mál sitt á að segja formanni KÍ að vera stilltur. Svo sagði hún að árangur nemenda væri ófullnægjandi og að 60% þeirra gætu ekki lesið sér til gagns. Mikill fjöldi nemenda kæmist ekki áfram í langskólanámi og ótækt væri að þeim liði illa. Hér væru líka of fáar kennslustundir. Hún ætlar að bjarga þessu: Tileinka þetta ár læsi. Ekki fylgdu frekari skýringar. Bjóða nemendum að semja reglur sem tryggja símafrí. Hún hafði hitt finnska menntamálaráðherrann í Eistlandi sem sagði henni að þar liði öllum vel eftir að símafrí komst á. Hún upplýsti fundargesti um að maður gæti tekið mark á því sem gerðist í Eistlandi því það væri ekki rykugt austantjaldsland. Hafa meiri námsaðgreiningu. Kenna t.d. á einu tungumáli í einni stofu og öðru í þeirri næstu. Leyfa foreldrum að fá próf barna sinna heim og færa námsmat aftur í tölur. Hún hefur heyrt óskir um þetta frá foreldrum og henni er ljúft og skylt að hlusta frekar á þá en kennara. Inga tók samt fram að hún bæri mikla virðingu fyrir kennurum og þeirra starfi. Hún vill gjarnan vinna hlutina með þeim. Mörgum fundargestum fannst vanta betri útskýringar hér. Hvernig ætlar Inga að sýna þetta í verki? Inga vildi líka hrósa kennurum og áréttaði að í Pisa kæmi fram að nemendum líði vel í samanburði þjóða. Þetta sagði hún eftir að hafa eytt miklum tíma í að ávarpa vanlíðan og vandræði nemenda. Fundargestir voru slegnir og fannst að fagmennskunni vegið. Málflutningurinn einkenndist af upphrópunum og einföldum lausnum á flóknum verkefnum. Sumir gengu út, sumir klöppuðu ekki, aðrir klöppuðu smá. Hún gekk út að þessu loknu, sá ekki ástæðu til að sitja á þingi, enda búin að segja sitt. Höfundur er þingfulltrúi á Ársþingi KÍ, skólastjóri og formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar