Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Eiður Þór Árnason skrifar 11. apríl 2026 21:15 Trump ræddi við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í kvöld. Ap/Alex Brandon Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. „
Fullyrðingu yfirmanns CENTCOM um að bandarísk skip hafi nálgast og siglt inn í Hormússund er harðlega neitað,“ hefur íranska ríkisfréttastofan Fars eftir talsmanni íranska hersins. Það sé undir herafla íranskra stjórnvalda komið hvort skip fari þar í gegn. BBC greinir frá þessu en fyrr í dag birti miðlæg stjórnstöð Bandaríkjahers (CENTCOM) færslu á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, þar sem fullyrt var að bandarískar hersveitir hefðu hafið „undirbúning að hreinsun tundurdufla í Hormússundi“ og að tvö skip „hefðu siglt um Hormússund ... sem hluti af víðtækara verkefni sem er ætlað að tryggja að sundið sé alveg laust við tundurdufl.“ Þá sagði Brad Cooper flotaforingi, yfirmaður CENTCOM, jafnframt á X: „Í dag hófum við ferlið við að koma á nýrri siglingaleið og við munum deila þessari öruggu leið með skipaiðnaðinum innan skamms til að auka flæði frjálsra viðskipta.“ Þríhliða viðræður fulltrúa Írans, Bandaríkjanna og Pakistans hófust í Islamabad í dag og hefur BBC heimildir fyrir því að þær muni ná fram yfir miðnætti að staðartíma. Skip að sigla í átt að Hormússundi í mars. aP Trump skaut á NATO Donald Trump Bandaríkjaforseti var bjartsýnn þegar hann ávarpaði fjölmiðla í kvöld: „Sama hvað gerist, þá vinnum við,“ sagði hann. „Við höfum gjörsigrað þetta land.“ Trump sagðist fá mikið af fréttum af viðræðunum í Islamabad, sem hafa staðið yfir í fleiri klukkustundir í dag, án þess að fara út í það nánar. Trump hélt áfram og sagði fréttamönnum að það „skipti [sig] engu máli“ hvort Bandaríkin nái samkomulagi við Íran eða ekki. Bandaríkjaher vinni nú að því að opna Hormússund. Hann nýtti tækifærið og skaut enn og aftur á stjórnvöld ríkja í Atlantshafsbandalaginu sem hafa verið treg við að stökkva fram og taka þátt í aðgerðum Bandaríkjanna í Íran: „Við fengum enga hjálp frá NATO.“ „Sjáum til hvað gerist, en frá mínum bæjardyrum séð er mér alveg sama,“ sagði Trump um gang viðræðnanna. Hélt því fram að sundið yrði fljótt opið á ný Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í samfélagsmiðlafærslu á Truth Social fyrr í dag að Hormússund yrði brátt opið fyrir skipaumferð á ný. Þá ítrekaði hann að tóm olíuskip væru á leið til Bandaríkjanna til að „hlaða.“ Forsetinn segist hafa samþykkt að hætta sprengjuárásum á Íran með því skilyrði að stjórnvöld í Teheran, höfuðborg Írans, opni Hormússund á ný. Um er að ræða eina fjölförnustu olíuflutningaleið heims og fara um 20 prósent af olíu og fljótandi jarðgasi um sundið í venjulegu árferði. Vegna þessa hefur lokun sundsins haft mikil áhrif á olíuverð og heimshagkerfið en einnig fer stór hluti lykilefna í áburðarframleiðslu um Hormússund. Siglingarleiðin hefur verið meira og minna lokuð síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran 28. febrúar. Útlit var fyrir að samkomulag hefði náðst um að opna sundið á þriðjudag en daginn eftir fóru írönsk stjórnvöld fram á að Ísraelsher myndi stöðva hernað sinn í Líbanon eftir mannskæðar árásir þar í landi. Síðan þá hefur tvennum sögum farið af því hvort vopnahlé í Líbanon hafi verið hluti af viðræðum Bandaríkjanna og Íran en Ísrael hefur sagt það afdráttarlaust að þær hafi ekki áhrif á árásir þeirra á Hezbollah í Líbanon. Ísrael þurfi að hætta árásum á landið Dr. Tarek Mitri, aðstoðarforsætisráðherra Líbanons, segir við BBC að til þess að viðræður Írans og Bandaríkjanna verði „marktækar“ þurfi Ísrael að hætta árásum sínum á landið. Sendiherrar Ísraels og Líbanons í Bandaríkjunum hyggjast funda í Washington DC á þriðjudag. Eftir að viðræður hófust í Pakistan gaf Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, út yfirlýsingu þar sem hann segist hafa gefið „samþykki sitt“ fyrir friðarviðræðum við Líbanon. „Ég hef gefið samþykki mitt, en með tveimur skilyrðum: við viljum að vopn Hezbollah verði tekin úr umferð og við viljum raunverulegan friðarsamning sem mun endast í kynslóðir,“ segir Netanjahú, samkvæmt AFP-fréttastofunni. Heilbrigðisráðuneyti Líbanons segir að tala látinna í landinu frá því að það dróst inn í átökin sé nú komin yfir tvö þúsund. Ríkisfréttastofa landsins greinir frá því að samkvæmt neyðaraðgerðamiðstöð ráðuneytisins hafi 2.020 manns látist og 6.436 særst frá 2. mars. Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.
Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Ísrael Líbanon Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Fleiri fréttir Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Sjá meira