Magnaður McIlroy með stærstu forystu sögunnar Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. apríl 2026 23:07 Vippan hjá Rory McIlroy var hrein unun að horfa á. Jared C. Tilton/Getty Images Ríkjandi meistarinn Rory McIlroy átti hreint frábæran dag og er tólf höggum undir pari eftir fyrstu tvo hringina á Masters-mótinu í golfi. Enginn hefur áður verið með jafn stóra forystu á miðpunkti mótsins. McIlroy fór fljúgandi af stað og byrjaði hringinn á þremur fuglum áður en skollar á 5. og 10. holu tóku við. Endaspretturinn hjá McIlroy var síðan enn betri en byrjunin. Á síðustu sjö holunum náði hann sex fuglum. Þannig lauk hann hringnum í dag á 65 höggum, eftir að hafa farið fyrsta hringinn á 67 höggum í gær. Besta höggið hjá þessum magnaða kylfingi var vafalaust á 17. holu þegar hann vippaði boltanum beint ofan í holu af 25 metra færi. Roars for Rory after a chip-in birdie on No. 17. #themasters pic.twitter.com/g7dWFVTIf4— The Masters (@TheMasters) April 10, 2026 Ef McIlroy heldur áfram að spila svona vel verður hann sá fyrsti síðan Tiger Woods árið 2002 til að verja Masters-meistaratitilinn. Norður-Írinn er langefstur nú þegar mótið er hálfnað en Sam Burns og Patrick Reed deila öðru sætinu, sex höggum undir pari eftir fyrstu tvo hringina. Ending on a high note. Sam Burns birdies No. 18. #themasters pic.twitter.com/pcYsxtqaRW— The Masters (@TheMasters) April 10, 2026 Enginn hefur áður verið með jafn stóra forystu eftir fyrstu tvo dagana. McIlroy er með sex högga forystu á næstu menn en fyrra metið var fimm högga forysta. Nokkrir hafa náð því áður en sá síðasti var Scottie Scheffler, efsti kylfingur heimslistans, þegar hann vann mótið árið 2022. Scheffler var meðal efstu manna eftir hringinn í gær en stóð sig ekki jafn vel í dag. Hann lauk leik í dag tveimur höggum yfir pari og er dottinn niður í 24. sæti. Efstu menn Masters eftir tvo daga: 1. Rory McIlroy (-12) T2. Sam Burns (-6) T2. Patrick Reed (-6) T4. Justin Rose (-5) T4. Shane Lowry (-5) T4. Tommy Fleetwood (-5) T7. Wyndham Clark (-4) T7. Tyrrell Hatton (-4) T7. Haotong Li (-4) T7. Kristoffer Reitan (-4) T7. Jason Day (-4) T7. Cameron Young (-4) Golf Masters-mótið Mest lesið Magnaður McIlroy með stærstu forystu sögunnar Golf Bjarni Guðjóns í garðyrkjuhönskum á opnunarleiknum Fótbolti „Tók bara eina snertingu og vissi hvað ég ætlaði að gera“ Sport Björgvins Halldórssonar minnst með einnar mínútu þögn Handbolti Uppgjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Körfubolti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Enski boltinn Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Golf Oliver sagður á leið til Keflavíkur Íslenski boltinn Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Íslenski boltinn Besta-spáin 2026: Þurfa að svara fyrir sig Íslenski boltinn Fleiri fréttir Magnaður McIlroy með stærstu forystu sögunnar Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Símabannið bitnaði illa á goðsögn Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Hröðustu flatir sem til eru Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Dagskráin í dag: Fyrsti dagur Masters, úrslitakeppni í körfu og Evrópuboltanum Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Sjáðu fullkomna púttið hjá dóttur McIlroy fyrir ári síðan McIlroy fær að kynnast fríðindum Masters-meistarans í fyrsta sinn Masters-miðvikudagur á Sýn Sport Metfjöldi norrænna kylfinga á Masters og Ísland gæti bæst í hópinn Fór holu í höggi á alþjóðlegu móti Kylfingar hugsa til Tigers Woods á Masters-mótinu Rose ekki dansað á rósum Trump styður við bakið á Tiger Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Mickelson neyðist til að sleppa Masters Hafnar fyrirliðasæti í Ryder-bikarnum Fékk leyfi til að fara í meðferð utan Bandaríkjanna Tiger Woods heldur fram sakleysi sínu Ópíóðar í vasa Woods sem segist hafa verið í símanum „Erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið einhvern“ Fyrrverandi eiginkonan hefur áhyggjur af Tiger Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Vann fyrsta titilinn eftir aðgerð á heila: „Ég var ekki einn í dag“ Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Sjá meira
McIlroy fór fljúgandi af stað og byrjaði hringinn á þremur fuglum áður en skollar á 5. og 10. holu tóku við. Endaspretturinn hjá McIlroy var síðan enn betri en byrjunin. Á síðustu sjö holunum náði hann sex fuglum. Þannig lauk hann hringnum í dag á 65 höggum, eftir að hafa farið fyrsta hringinn á 67 höggum í gær. Besta höggið hjá þessum magnaða kylfingi var vafalaust á 17. holu þegar hann vippaði boltanum beint ofan í holu af 25 metra færi. Roars for Rory after a chip-in birdie on No. 17. #themasters pic.twitter.com/g7dWFVTIf4— The Masters (@TheMasters) April 10, 2026 Ef McIlroy heldur áfram að spila svona vel verður hann sá fyrsti síðan Tiger Woods árið 2002 til að verja Masters-meistaratitilinn. Norður-Írinn er langefstur nú þegar mótið er hálfnað en Sam Burns og Patrick Reed deila öðru sætinu, sex höggum undir pari eftir fyrstu tvo hringina. Ending on a high note. Sam Burns birdies No. 18. #themasters pic.twitter.com/pcYsxtqaRW— The Masters (@TheMasters) April 10, 2026 Enginn hefur áður verið með jafn stóra forystu eftir fyrstu tvo dagana. McIlroy er með sex högga forystu á næstu menn en fyrra metið var fimm högga forysta. Nokkrir hafa náð því áður en sá síðasti var Scottie Scheffler, efsti kylfingur heimslistans, þegar hann vann mótið árið 2022. Scheffler var meðal efstu manna eftir hringinn í gær en stóð sig ekki jafn vel í dag. Hann lauk leik í dag tveimur höggum yfir pari og er dottinn niður í 24. sæti. Efstu menn Masters eftir tvo daga: 1. Rory McIlroy (-12) T2. Sam Burns (-6) T2. Patrick Reed (-6) T4. Justin Rose (-5) T4. Shane Lowry (-5) T4. Tommy Fleetwood (-5) T7. Wyndham Clark (-4) T7. Tyrrell Hatton (-4) T7. Haotong Li (-4) T7. Kristoffer Reitan (-4) T7. Jason Day (-4) T7. Cameron Young (-4)
Efstu menn Masters eftir tvo daga: 1. Rory McIlroy (-12) T2. Sam Burns (-6) T2. Patrick Reed (-6) T4. Justin Rose (-5) T4. Shane Lowry (-5) T4. Tommy Fleetwood (-5) T7. Wyndham Clark (-4) T7. Tyrrell Hatton (-4) T7. Haotong Li (-4) T7. Kristoffer Reitan (-4) T7. Jason Day (-4) T7. Cameron Young (-4)
Golf Masters-mótið Mest lesið Magnaður McIlroy með stærstu forystu sögunnar Golf Bjarni Guðjóns í garðyrkjuhönskum á opnunarleiknum Fótbolti „Tók bara eina snertingu og vissi hvað ég ætlaði að gera“ Sport Björgvins Halldórssonar minnst með einnar mínútu þögn Handbolti Uppgjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Körfubolti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Enski boltinn Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Golf Oliver sagður á leið til Keflavíkur Íslenski boltinn Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Íslenski boltinn Besta-spáin 2026: Þurfa að svara fyrir sig Íslenski boltinn Fleiri fréttir Magnaður McIlroy með stærstu forystu sögunnar Algjör martröð á Masters hjá MacIntyre Goðsagnir lögðu Tiger línurnar: „Hann á ekki að keyra“ Símabannið bitnaði illa á goðsögn Rose gerði rándýr mistök en Scheffler stóð sig stöðugt Titilvörnin hefst mjög vel hjá McIlroy en DeChambeau í basli „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Hröðustu flatir sem til eru Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Dagskráin í dag: Fyrsti dagur Masters, úrslitakeppni í körfu og Evrópuboltanum Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Sjáðu fullkomna púttið hjá dóttur McIlroy fyrir ári síðan McIlroy fær að kynnast fríðindum Masters-meistarans í fyrsta sinn Masters-miðvikudagur á Sýn Sport Metfjöldi norrænna kylfinga á Masters og Ísland gæti bæst í hópinn Fór holu í höggi á alþjóðlegu móti Kylfingar hugsa til Tigers Woods á Masters-mótinu Rose ekki dansað á rósum Trump styður við bakið á Tiger Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Mickelson neyðist til að sleppa Masters Hafnar fyrirliðasæti í Ryder-bikarnum Fékk leyfi til að fara í meðferð utan Bandaríkjanna Tiger Woods heldur fram sakleysi sínu Ópíóðar í vasa Woods sem segist hafa verið í símanum „Erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið einhvern“ Fyrrverandi eiginkonan hefur áhyggjur af Tiger Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Vann fyrsta titilinn eftir aðgerð á heila: „Ég var ekki einn í dag“ Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Sjá meira