Ópíóðar í vasa Woods sem segist hafa verið í símanum Valur Páll Eiríksson skrifar 31. mars 2026 16:05 Woods segir slysið hafa orðið því hann var í símanum og að skipta um útvarpsstöð. getty Tiger Woods sagði bandarískum lögregluyfirvöldum að hann hafi verið í símanum og að skipta um útvarpsstöð sem olli því að hann lenti í bílslysi í síðustu viku. Ópíóðar fundust í vasa Woods.
Bandarískir fjölmiðlar hafa komist yfir lögregluskýrslu sem varðar bílslys Woods og kemur þar fram að hann hafi „svitnað verulega“ og hreyfingar hans „þreytulegar og hægar“ á meðan hann var yfirheyrður vegna málsins. Woods var handtekinn á föstudaginn var sakaður um að keyra undir áhrifum. Hann velti bíl sínum eftir að hann klessti á annan bíl. Hann stóðst áfengispróf á staðnum en neitaði að undirgangast þvagpróf til vegna gruns um að hann keyrði undir áhrifum annarra ólöglegra efna en áfengis. Woods er sagður hafa haltrað og átt erfitt með að halda jafnvægi þegar hann var tekinn í próf eftir áreksturinn. Augu hans hafi verið rauðsprungin og augasteinar hans útvíkkaðir. Þá kemur fram að tvær hydrocodone-töflur hafi fundist í buxnavasa hans. Hydrocodone er sterkt vanabindandi ópíóðaverkjalyf sem er notað við miðlungs til alvarlegum verkjum. Woods hefur notað slík verkjalyf undanfarin ár vegna mikilla meiðsla en hann gekk til að mynda undir fjórar bakaðgerðir árin 2014 til 2017. Woods ætlaði sér að taka þátt á Masters-mótinu sem fram fer í næstu viku en alls er óvíst hvort af því verði í ljósi fjórða bílslyss hans á undanförnum 17 árum. Sagan af hinum þremur voru dregin saman hér.
Bílslys Tigers Woods Masters-mótið Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira