Rose ekki dansað á rósum Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 14:01 Rose gat brosað á Masters-mótinu í fyrra - allt þar til í lokin. Andrew Redington/Getty Images Mun Justin Rose einhvern tíma geta klæðst hinum græna jakka eftir Masters-mót? Fáir hafa spilað eins vel á Augusta-vellinum í gegnum tíðina án árangurs. Hann verður á brautinni þegar mótið fer fram í vikunni.
Útlit var fyrir að langþráður sigur kæmi hjá Rose fyrir ári síðan. Hinn 44 ára gamli Rose átti fyrir höndum 20 feta langt pútt fyrir fugli á lokabrautinni á lokahringnum á sunnudegi. Justin Rose sets the Clubhouse lead with a Sunday 66. #themasters pic.twitter.com/YupKW0xHyp— The Masters (@TheMasters) April 13, 2025 Hann sökkti því, komst á ellefu undir par eftir hring þar sem hann tók aðeins 66 högg í heildina. Það dugði þó ekki fyrir sigri. Þeir Rory McIlroy fóru í bráðabana þar sem sá norður-írski hafði betur. Átta árum fyrr vann Spánverjinn Sergio García upp forskot Rose á lokadegi og hafði betur í bráðabana til að klæðast græna jakkanum árið 2017. Það var fyrra tapaða tækifærið. Það hafa aðeins 57 menn klæðst jakkanum fræga. Mörgum hefur mistekist með hruni á lokadegi, kiknað undan pressunni eða einfaldlega aldrei fundið sig almennilega á Augusta-vellinum þrátt fyrir að spila almennt vel annarsstaðar. Rose hefur hins vegar nánast alltaf leikið vel, aldrei klúðrað forystunni rækilega niður og nánast upp á hvert ár spilað ljómandi vel. Rose hefur þrisvar lent í öðru sæti, og enginn hefur gert það oftar. Því meti deilir hann með Greg Norman, Tom Watson, Johnny Miller, Tom Kite og Raymond Floyd. Aðeins Rory McIlroy, Hideki Matsuyama, Tiger Woods og Phil Mickelson eru með betra meðalskor á Masters-mótum – Rose er með 71,76 að meðaltali á sínum hring á mótinu, sem er lægra en til að mynda hjá goðsögninni Jack Nicklaus. Rose er samanlagt á 18 höggum undir pari ef litið er til síðustu tíu Masters-móta. Aðeins Scottie Scheffler, Jon Rahm, Rory McIlroy, Jordan Spieth, Xander Schauffele og Hideki Matsuyama hafa gert betur síðustu tíu ár. Aðeins Rose og Schauffele hefur af þeim mistekist að fagna sigri. Rose hefur þá níu sinnum leitt mótið eftir dag eitt, tvö eða þrjú. Hann er þriðji á lista yfir þá sem hafa haft forystuna í dagslok á einhverjum af fyrstu þremur dögunum. Aðeins Arnold Palmer og Jack Nicklaus hafa gert það oftar. Munurinn er að þeir tveir eiga tíu jakka samanlagt en Rose engan, enn. Spurningin er hvort það takist einn daginn, en mótunum og tækifærunum fer fækkandi. Tækifæri á slíkri rós í hnappagatið fæst jú aðeins einu sinni á ári. Rose fær eitt tækifæri til í vikunni þegar Masters-mótið hefst á Sýn Sport.
Masters-mótið Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira