Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Agnar Már Másson skrifar 10. apríl 2026 20:53 Þorgerður Katrín er flutningsmaður þingsályktunartillögunnar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Vísir/Ívar Fannar Landskjörstjórn telur að orðalag sé gildishlaðið í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort „halda eigi áfram“ aðildarviðræðum við Evrópusambandið enda sé enn deilt um það hvort umsókn Íslands sé virk eða ekki. Kjörstjórnin telur að spurningin geti vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda. Landskjörstjórn skilaði í vikunni umsögn sinni til utanríkismálanefndar Alþingis þar sem athugasemdir eru gerðar við þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um „framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu“. Eins og þjóð er orðið kunnugt hefur ríkisstjórnin boðað til atkvæðagreiðslu 29. ágúst þar sem ákveðið verður hvort aðildarviðræður við Evrópusambandið verði teknar upp að nýju. Mikið hefur verið deilt um það hvort umsókn Íslands sé gild eða ekki en athugasemdir Landskjörstjórnar varða einmitt það, þar sem gengið er út frá því í tillögu Þorgerðar að Íslendingar muni annaðhvort „halda áfram“ aðildarviðræðum eða ekki. Spurningin á kjörseðlinum, skv. þingsályktunartillögu Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? >Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. >Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Landskjörstjórn bendir á að uppi séu skiptar skoðanir á því hvort aðildarumsókn Íslands hafi verið dregin til baka eða ekki. Ursula Von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði í sumar að umsóknin væri virk. Hafa sumir samt véfengt það, nú síðast Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi utanríksiráðherra, í Morgunblaðinu í dag. „Það er ekki hlutverk landskjörstjórnar að túlka eða leggja mat á stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu en á hinn bóginn verður ekki undan því vikist að benda á að með orðalagi spurningarinnar er gengið út frá ákveðinni forsendu sem ekki er almennt óumdeild,“ segir í umsögn Landskjörstjórnar. Þannig sé ekki hægt að slá því föstu með óyggjandi hætti að spurningin „geti ekki vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda“. Sem dæmi nefnir kjörstjórnin hugsanlegan kjósanda, sem kynni að líta svo á að aðildarviðræðum Íslands hafi verið slitið, sem gæti átt erfitt með að svara spurningunni með „já“ eða „nei“. „Viðkomandi kjósandi væri mögulega hlynntur aðildarviðræðum en teldi sig ekki geta svarað já því þá væri hann jafnframt að láta þá skoðun í ljós að viðræðunum hefði ekki verið slitið, sem væri ekki í samræmi við hans sannfæringu.“ Lagt er til að spurningin verði orðuð með opnari hætti þannig að hún feli ekki í sér afstöðu til stöðu viðræðnanna. Landskjörstjórn leggur auk þess til að svarkostir verði aðeins „já“ og „nei“ í stað þess að endurtaka spurninguna í svarkostunum eins og lagt er til í þingsályktunartillögunni. Kjörstjórnin bendir enn fremur á að ef kjördagur verði 29. ágúst 2026 þurfi undirbúningurinn að eiga sér stað í miðjum sumarleyfum, sem gæti valdið erfiðleikum við mönnun kjörstaða og einkum við framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Alþingi Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira
Landskjörstjórn skilaði í vikunni umsögn sinni til utanríkismálanefndar Alþingis þar sem athugasemdir eru gerðar við þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um „framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu“. Eins og þjóð er orðið kunnugt hefur ríkisstjórnin boðað til atkvæðagreiðslu 29. ágúst þar sem ákveðið verður hvort aðildarviðræður við Evrópusambandið verði teknar upp að nýju. Mikið hefur verið deilt um það hvort umsókn Íslands sé gild eða ekki en athugasemdir Landskjörstjórnar varða einmitt það, þar sem gengið er út frá því í tillögu Þorgerðar að Íslendingar muni annaðhvort „halda áfram“ aðildarviðræðum eða ekki. Spurningin á kjörseðlinum, skv. þingsályktunartillögu Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? >Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. >Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Landskjörstjórn bendir á að uppi séu skiptar skoðanir á því hvort aðildarumsókn Íslands hafi verið dregin til baka eða ekki. Ursula Von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði í sumar að umsóknin væri virk. Hafa sumir samt véfengt það, nú síðast Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi utanríksiráðherra, í Morgunblaðinu í dag. „Það er ekki hlutverk landskjörstjórnar að túlka eða leggja mat á stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu en á hinn bóginn verður ekki undan því vikist að benda á að með orðalagi spurningarinnar er gengið út frá ákveðinni forsendu sem ekki er almennt óumdeild,“ segir í umsögn Landskjörstjórnar. Þannig sé ekki hægt að slá því föstu með óyggjandi hætti að spurningin „geti ekki vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda“. Sem dæmi nefnir kjörstjórnin hugsanlegan kjósanda, sem kynni að líta svo á að aðildarviðræðum Íslands hafi verið slitið, sem gæti átt erfitt með að svara spurningunni með „já“ eða „nei“. „Viðkomandi kjósandi væri mögulega hlynntur aðildarviðræðum en teldi sig ekki geta svarað já því þá væri hann jafnframt að láta þá skoðun í ljós að viðræðunum hefði ekki verið slitið, sem væri ekki í samræmi við hans sannfæringu.“ Lagt er til að spurningin verði orðuð með opnari hætti þannig að hún feli ekki í sér afstöðu til stöðu viðræðnanna. Landskjörstjórn leggur auk þess til að svarkostir verði aðeins „já“ og „nei“ í stað þess að endurtaka spurninguna í svarkostunum eins og lagt er til í þingsályktunartillögunni. Kjörstjórnin bendir enn fremur á að ef kjördagur verði 29. ágúst 2026 þurfi undirbúningurinn að eiga sér stað í miðjum sumarleyfum, sem gæti valdið erfiðleikum við mönnun kjörstaða og einkum við framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Spurningin á kjörseðlinum, skv. þingsályktunartillögu Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? >Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. >Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Alþingi Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira