Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Víða hafa verið haldnir fundir, pallborð og kappræður nú þegar þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu nálgast óðfluga. Félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir einum slíkum í dag, þann 26. ágúst, og leit fréttamaður Sýnar þar við. Innlent 26.8.2026 23:21
Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp, söngkonan Bríet tók lagið og uppistandarinn Bergur Ebbi Benediktsson leiddi samtal við salinn í svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ í Austurbæ í Reykjavík sem fram fór fyrr í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn. Innlent 26.8.2026 16:46
Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði. Innlent 26.8.2026 18:59
Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er handan við hornið og hefur tekið yfir alla umræðu í landinu. Nóg hefur verið rætt og ritað um málið og margir farið óhefðbundnar leiðir í nálgun sinni. Vísir hefur tekið saman kjánalegustu augnablikin úr umræðunni síðustu vikurnar. Menning 26. ágúst 2026 07:02
ESB-kosning á radar erlendra fjárfesta í íslenskum verðbréfum Erlendir sjóðstjórar sem hafa fjárfest í íslenskum verðbréfum undanfarin ár eru farnir að velta fyrir sér mögulegum áhrifum þess á markaði og efnahag ef Íslendingar samþykkja að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Franskur stórbanki nefnir að með aðild skapist hætta á að auðug fiskimið Íslands opnist gagnvart erlendum útgerðum, á meðan einn stærsti erlendi fjárfestirinn á skuldabréfamarkaði telur að verði já-ið ofan á þá gæti það ýtt undir áhuga á íslenskum ríkisbréfum. Innherji 26. ágúst 2026 06:37
„Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. Innlent 25. ágúst 2026 22:01
Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Tugir þúsunda hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fer fram á laugardag. Opnunartími í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hefur verið lengdur nú þegar styttist óðum í kjördag. Innlent 25. ágúst 2026 20:52
Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli „Alþjóðlega andrúmsloftið var allt annað þá. Ísland var nýkomið úr bankahruninu. Íslenskir fjármálamenn alræmdir. Það var afskaplega lítið traust úti í Evrópu til íslenskrar efnahagsstefnu og fjármála,“ segir Þorsteinn Gunnarsson varaformaður íslensku samninganefndarinnar í síðustu aðildarviðræðum. Innlent 25. ágúst 2026 16:25
Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. Innlent 25. ágúst 2026 15:11
Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Enn dregur saman milli fylkinga í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu hyggjast 51,3 prósent þeirra sem taka afstöðu segja já en 48,7 prósent segja nei. Innlent 25. ágúst 2026 14:03
Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Greint verður frá niðurstöðum úr glænýrri könnun Maskínu í Pallborðinu nú þegar fjórir dagar eru í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Innlent 25. ágúst 2026 12:01
Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist líta ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, „alvarlegum augum“ þegar hann sagði utanríkisráðuneytið orðið að „áróðursvél“. Kveðst hún vonast til að forystufólk landsins, líka fyrri tíðar, nálgist umræðuna af auðmýkt. Innlent 24. ágúst 2026 21:21
Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra úr röðum Samfylkingarinnar, telur raunhæft að samið verði um það í viðræðum við Evrópusambandið að hafið í kringum Ísland yrði sérstakt stjórnsýslusvæði um fiskveiðar. Hún segist ekki vera sami Evrópusinni og hún var áður og lítur ekki svo á að hugsanlegar aðildarviðræður snúist um að „kíkja í pakkann“, heldur sé um „harðar samningaviðræður“ að ræða. Innlent 24. ágúst 2026 14:13
Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Netöryggissveitin CERT-IS fylgist grannt með notkun gerviaðganga á samfélagsmiðlum nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Tilgangur þeirra er að ýta undir upplýsingaóreiðu að sögn forstöðumanns sem hvetur almenning til að vera á varðbergi. Innlent 24. ágúst 2026 12:01
Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, biðlar til Donald Trump Bandaríkjaforseta að bjóða Íslendingum samning sem myndi gera Ísland að 51. ríki Bandaríkjanna. Handbolti 24. ágúst 2026 12:01
Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair telur að þunglamaleg reglugerð Evrópusambandsins geti þrengt að rekstri fyrirtækja innan sambandsins og gæta þurfi að samkeppnishæfni þeirra. Hins vegar stuðli vinnumarkaðsmódelið hérlendis að óstöðugleika og geti verið heilmikil áskorun í fyrirtækjarekstri. Sveinn Logi Sölvason forstjóri Emblu Medical, móðurfélags Össurar, segir möguleg tækifæri innan myntbandalags Evrópusambandsins. Viðskipti innlent 23. ágúst 2026 18:43
Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Fasteignaverð hefur rokið upp í löndum við inngöngu í Evrópusambandið. Fasteignasali segir þó ómögulegt að fullyrða hvað myndi gerast gangi Ísland inn í sambandið og taki upp evru. Viðskipti innlent 23. ágúst 2026 14:22
„Ætlar hann að segja já eða nei?“ „Nú er þetta aðeins að fara að verða eins og í frúinni í Hamborg: Ætlar hann að segja já eða nei?“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, í Sprengisandi á Bylgjunni í dag þar sem hann ræddi um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Innlent 23. ágúst 2026 12:44
Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Tónlistarmaðurinn og Færeyingurinn Jógvan Hansen segist ætla að flytja aftur til Færeyja verði af inngöngu Íslands í Evrópusambandið í kjölfar mögulegra aðildarviðræðna. Hann hefur búið á Íslandi í 23 ár. Innlent 23. ágúst 2026 12:25
Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Sprengisandur verður helgaður komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Talið verður upp úr kjörkössunum eftir viku og þá komumst við að því hvort þjóðin segi nei eða já. Innlent 23. ágúst 2026 08:00
Límmiðar lifðu ekki af nóttina „Ég er bara algjörlega miður mín út af þessu. Að þetta fái ekki að vera í friði. Þetta eru líklega einhver skemmd epli,“ segir Frosti Sigurgeirsson, bóndi á Heiðarseli á Hróarstungu í Fljótsdalshéraði, sem setti upp límmiða á heyrúllur í gær, merkta „Já til að sjá“. Miðarnir voru horfnir í morgun. Innlent 22. ágúst 2026 16:04
Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn. Innlent 22. ágúst 2026 13:43
„Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að engin aðlögun íslenskra laga að evrópsku regluverki muni eiga sér stað segi þjóðin já í atkvæðagreiðslunni í næstu viku. Hún segir ekkert hægt að segja til um mögulegar undanþágur. Það muni samningaviðræður leiða í ljós. Innlent 21. ágúst 2026 20:54
Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu „Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins. Innlent 21. ágúst 2026 16:27