Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir núna Miðflokkinn í Borgarbyggð Kristján Már Unnarsson skrifar 1. apríl 2026 17:57 Haukur Þór Hauksson, frambjóðandi Miðflokksins, ásamt eiginkonu sinni, Ástu Möller, fyrrverandi alþingismanni Sjálfstæðisflokksins. vísir/Steina Matt Haukur Þór Hauksson rekstrarhagfræðingur og frístundabóndi í Borgarfirði mun skipa efsta sæti á lista Miðflokksins í Borgarbyggð. Haukur gekk nýlega í Miðflokkinn en áður hefðu margir eflaust skilgreint hann sem innmúraðan sjálfstæðismann. Hann er auk þess kvæntur fyrrverandi alþingismanni Sjálfstæðisflokksins.
Héraðsfréttablaðið Skessuhorn greindi fyrst frá því að Haukur Þór myndi leiða lista Miðflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Borgarbyggð. Framboðslistinn verður þó ekki opinberlega kynntur fyrr en eftir páska. Haukur var á yngri árum virkur í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum, var meðal annars varaformaður Heimdallar, í stjórn hverfafélags og landsfundarfulltrúi. Hann er eiginmaður Ástu Möller en hún sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árabilinu 1999 til 2009. Haukur Þór Hauksson mun skipa efsta sæti á lista Miðflokksins í Borgarbyggð.aðsend Haukur hefur einnig verið í framvarðasveit í samtökum kaupmanna en hann var formaður Félags íslenskra stórkaupmanna og Samtaka verslunarinnar. Hann var kaupmaður í Borgarljósum þar til ljósafyrirtækið var selt árið 2002 en rekur núna fyrirtækjaráðgjöfina Investis. Fyrir rúmum áratug fluttu þau hjónin heimili sitt úr Reykjavík og byggðu upp jörðina Fornastekk í Stafholtstungum. Þar hafa þau stundað margvíslegan frístundabúskap. Í samtali við fréttastofu Sýnar kveðst Haukur hafa sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum vegna óánægju með samstarf flokksins með Vinstri grænum í síðustu ríkisstjórn. Ríkisútgjöld hafi þá snaraukist og opinberum starfsmönnum fjölgað umtalsvert. Auk þess hafi sér mislíkað margt í utanríkisstefnu ráðherra flokksins. Hann hafi þó ekki gengið í Miðflokkinn fyrr en nýlega eftir að leitað var til hans um að leiða framboð flokksins í Borgarbyggð. Hann hafi slegið til enda hafi sér hugnast vel málflutningur flokksins. Haukur eru þegar farinn að láta til sín taka í opinberri umræðu um málefni Borgarbyggðar. Hann segir að taka þurfi til í fjármálum sveitarfélagsins eftir skuggalega skuldaukningu. Þá kveðst hann ætla að beita sér af alefli gegn áformum um vindmyllur á hálsum Borgarfjarðar og lagningu háspennulínu í gegnum sveitirnar.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarbyggð Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Innlent Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Innlent Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Innlent Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Erlent „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Ætla að fá þjóðernisflokki völdin í innflytjendamálum Erlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða Sjá meira