„Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 31. mars 2026 12:36 Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins. Henni finnst sem samtökin Solaris séu að reyna að þagga niður í sér því hún hafi áhyggjur af þróun innflytjendamála. Vísir/Ívar Fannar Meiðyrðamál Solaris gegn formanni Sjálfstæðisflokksins verður þingfest í héraðsdómi Suðurlands á morgun. Solaris höfðar málið vegna ummæla sem formaðurinn lét meðal annars falla um fólk frá Palestínu í nóvember síðastliðnum.
Málið varðar ummæli sem Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, lét falla í þættinum Spursmál í lok nóvember í fyrra þar sem verið var að ræða um ferlið þegar sjálfboðaliðar á vegum Solaris aðstoðuðu flóttafólk frá Palestínu yfir landamærin til Egyptalands en umræddir voru með dvalarleyfi á Íslandi í gegnum fjölskyldusameiningu. Í þættinum sagði hún meðal annars að enginn hefði vitað deili á því fólki sem komið hafi verið yfir landamærin með mútugreiðslum. Guðrún fékk stefnuna í hendur á sunnudag. „Ég ætla að vera alveg heiðarleg með það að auðvitað varð mér brugðið. Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað. Svo þegar ég fór nú að lesa stefnuna og dómkröfurnar þá var ég undrandi, ég verð að viðurkenna það. Bæði eru nú liðnir fjórir mánuðir frá því að ég var í þessu umtalaða viðtali í Spursmálum 28. nóvember. Og þess vegna var ég svolítið hissa. Af hverju núna, fjórum mánuðum síðar? Ég get ekki séð að það sé hægt að lesa það út úr ummælum mínum að þarna eigi einhverjir einstaklingar að verða fyrir einhverjum miska.“ En er eitthvað í stefnunni sem þú tekur til þín? „Í sjálfu sér ekki. Það sem ég tek auðvitað til mín er það að ég hlýt að eiga tjáningarfrelsi og það er varið bæði af stjórnarskrá Íslands og Mannréttindasáttmála Evrópu. Þannig að mér finnst mjög greinilegt að þessi samtök, Solaris, sem stefna mér hér vilji hefta tjáningarfrelsi mitt og fyrir. Ég mun taka til varna fyrir því. Ég hef nú reynt að leggja mig alla fram um að vanda mál mitt og vera varkár með mál mitt alla ævi. Líka því ég er í pólitík og ég hef bara alltaf staðið við það sem ég hef látið út úr mér og ég ætla að gera það hér eftir sem hingað til,“ segir Guðrún. Hafi þýðingu að Guðrún sé valdhafi Sema Erla Serdaroglu, formaður Solaris, var spurð hvers vegna Guðrúnu og aðeins henni væri stefnt. „Það hefur vissulega margt verið látið falla um samtökin, sjálfboðaliða þeirra og þetta verkefni. Mest af því hefur verið byggt á ásökunum um mjög alvarlega glæpi til þess að ýta undir fordóma, sundrungu og valda okkur skaða en það sem hins vegar á við í þessu máli er að Guðrún Hafsteinsdóttir er í dag formaður Sjálfstæðisflokksins og þegar verkefnið stóð yfir var hún dómsmálaráðherra og hún veit betur en svo að hér hafi verið að flytja hingað einstaklinga sem enginn vissi deili á, eins og hún sagði, og það eru engar sannanir sem liggja fyrir því að við höfum verið að greiða mútur og höfum harðneitað fyrir það allan tímann því það er einfaldlega ósatt. Orð hafa afleiðingar og við þekkjum það vel og orðum fylgir líka ábyrgð og það skiptir máli að þegar valdhafar láta ummæli eins og þessi falla þá þarf að draga fólk til ábyrgðar.“
Hjálparstarf Sjálfstæðisflokkurinn Palestína Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Guðrúnu frjálst að fara með ósannindi en þurfi að ábyrgjast fyrir dómi Solaris, hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, mótmæla því að „það séu þjóðarhagsmunir að formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra fái að fara með hrein ósannindi“. Þau hafa stefnt formanninum fyrir meiðyrði. 30. mars 2026 20:55 Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins Solaris hefur stefnt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, fyrir meiðyrði. Krafist er þess að ummæli Guðrúnar í Spursmálum á síðasta ári verði dæmd dauð og ómerk. 30. mars 2026 18:59 Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira
Guðrúnu frjálst að fara með ósannindi en þurfi að ábyrgjast fyrir dómi Solaris, hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, mótmæla því að „það séu þjóðarhagsmunir að formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra fái að fara með hrein ósannindi“. Þau hafa stefnt formanninum fyrir meiðyrði. 30. mars 2026 20:55
Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins Solaris hefur stefnt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, fyrir meiðyrði. Krafist er þess að ummæli Guðrúnar í Spursmálum á síðasta ári verði dæmd dauð og ómerk. 30. mars 2026 18:59