Ekki okkar verðbólga Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar 1. apríl 2026 16:02 Það er orðið þreytandi að hlusta á síendurtekna möntru frá Seðlabankanum, stjórnvöldum og fulltrúum atvinnulífsins: að launahækkanir og kjarasamningar launafólks séu meginorsök verðbólgunnar. Eins og svo oft áður virðast þessir aðilar sjá þá einu lausn að þrengja að launafólki. Verkalýðshreyfingin gekk á undan með góðu fordæmi við gerð síðustu kjarasamninga með því að semja um launahækkanir sem voru hóflegar og undir verðbólgu. Það var gert í þeirri trú að aðrir aðilar í samfélaginu, fyrirtækin og stjórnvöld, myndu leggja sitt af mörkum og halda aftur af verðhækkunum. Á sama tíma og kallað er eftir meiri „aga“ á vinnumarkaði hefur ekkert lát verið á verðhækkunum hjá þeim sem selja heimilunum nauðsynjar. Matvöruverð hækkar mánaðarlega, bankarnir högnuðust um nær 100 milljarða á síðasta ári og stórfyrirtæki á matvöru- og orkumarkaði skiluðu tugmilljarða hagnaði. Þar er engin kreppa, enginn agi, ekkert aðhald. Á meðan stórfyrirtækin blómstra berst almenningur í landinu við að ná endum saman. Launaskriðið á ekki rætur í kjarasamningum. Samt er launafólk gert að sökudólgi. Langvarandi hávaxtastefna hefur ekki skilað tilætluðum árangri; verðbólga er á uppleið og atvinnuleysi eykst. Verðbólgan leggur þyngstu byrðarnar á ungt og skuldsett fólk en hefur lítil áhrif á þá sem standa sterkast fjárhagslega. Stjórnvöld hafa ekki staðið við sín loforð. Gjaldskrár hafa hækkað langt umfram verðlag og í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar eru engar tilraunir gerðar til að koma böndum á hækkanirnar eða setja fram úrræði til að létta heimilum landsins lífið. Það er lýsandi fyrir stöðuna að Fagfélögin hafa í dag þurft að dusta rykið af auglýsingaherferðinni „Ekki okkar verðbólga“ sem keyrð var fyrir tveimur árum. Því miður hefur lítið sem ekkert áunnist á þeim tíma og staðan er óbreytt. Sameiginlega sýnin sem lá til grundvallar síðustu kjarasamningum er brostin. Ef raunverulegur vilji er til að ná tökum á verðbólgu þarf að horfast í augu við orsakir hennar. Þar þarf hið opinbera og stórfyrirtækin í landinu að horfa inn á við. Launafólk hefur þegar lagt sitt af mörkum. Nú er löngu orðið tímabært að aðrir líti í eigin barm. Höfundur er formaður Fagfélaganna og MATVÍS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verðlag Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Það er orðið þreytandi að hlusta á síendurtekna möntru frá Seðlabankanum, stjórnvöldum og fulltrúum atvinnulífsins: að launahækkanir og kjarasamningar launafólks séu meginorsök verðbólgunnar. Eins og svo oft áður virðast þessir aðilar sjá þá einu lausn að þrengja að launafólki. Verkalýðshreyfingin gekk á undan með góðu fordæmi við gerð síðustu kjarasamninga með því að semja um launahækkanir sem voru hóflegar og undir verðbólgu. Það var gert í þeirri trú að aðrir aðilar í samfélaginu, fyrirtækin og stjórnvöld, myndu leggja sitt af mörkum og halda aftur af verðhækkunum. Á sama tíma og kallað er eftir meiri „aga“ á vinnumarkaði hefur ekkert lát verið á verðhækkunum hjá þeim sem selja heimilunum nauðsynjar. Matvöruverð hækkar mánaðarlega, bankarnir högnuðust um nær 100 milljarða á síðasta ári og stórfyrirtæki á matvöru- og orkumarkaði skiluðu tugmilljarða hagnaði. Þar er engin kreppa, enginn agi, ekkert aðhald. Á meðan stórfyrirtækin blómstra berst almenningur í landinu við að ná endum saman. Launaskriðið á ekki rætur í kjarasamningum. Samt er launafólk gert að sökudólgi. Langvarandi hávaxtastefna hefur ekki skilað tilætluðum árangri; verðbólga er á uppleið og atvinnuleysi eykst. Verðbólgan leggur þyngstu byrðarnar á ungt og skuldsett fólk en hefur lítil áhrif á þá sem standa sterkast fjárhagslega. Stjórnvöld hafa ekki staðið við sín loforð. Gjaldskrár hafa hækkað langt umfram verðlag og í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar eru engar tilraunir gerðar til að koma böndum á hækkanirnar eða setja fram úrræði til að létta heimilum landsins lífið. Það er lýsandi fyrir stöðuna að Fagfélögin hafa í dag þurft að dusta rykið af auglýsingaherferðinni „Ekki okkar verðbólga“ sem keyrð var fyrir tveimur árum. Því miður hefur lítið sem ekkert áunnist á þeim tíma og staðan er óbreytt. Sameiginlega sýnin sem lá til grundvallar síðustu kjarasamningum er brostin. Ef raunverulegur vilji er til að ná tökum á verðbólgu þarf að horfast í augu við orsakir hennar. Þar þarf hið opinbera og stórfyrirtækin í landinu að horfa inn á við. Launafólk hefur þegar lagt sitt af mörkum. Nú er löngu orðið tímabært að aðrir líti í eigin barm. Höfundur er formaður Fagfélaganna og MATVÍS.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar