Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Kjartan Kjartansson skrifar 23. mars 2026 14:33 Donald Trump hafði persónulega óbeit á Robert Mueller, fyrrverandi forstjóra FBI og sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins sem rannsakaði Rússatengsl Trump. Forsetinn fagnaði andláti Mueller á samfélagsmiðli um helgina. Vísir/Getty Bandaríkjaforseti sætir harðri gagnrýni fyrir að fagna andláti fyrrverandi forstjóra alríkislögreglunnar sem stýrði rannsókn á tengslum forsetaframboðs hans við Rússa árið 2016.
Robert Mueller, sem stýrði alríkislögreglunni FBI í eftirleik hryðjuverkaárásanna 11. september árið 2011, lést á föstudag, 81 árs að aldri. Hann komst í ónáð hjá Trump eftir að hann tók að sér að stýra rannsókn dómsmálaráðuneytisins á tengslum framboðsins við rússnesk stjórnvöld sem sérstakur rannsakandi þess. „Robert Mueller var að deyja. Gott, ég er ánægður með að hann sé dauður. Hann getur ekki lengur sært saklaust fólk,“ skrifaði Trump í færslu á eigin samfélagsmiðli á laugardag. Skjáskot af færslu Trump á Truth Social 21. mars árið 2026 Fjölmargir demókratar hafa atyrt forsetann fyrir smekkleysið og meinfýsnina. Hann sé ekki hæfur til að gegna embætti. Bandarískum fjölmiðlum tókst jafnvel að fánn að minnsta kosti einn þingmann Repúblikanaflokksins til þess að viðurkenna að ummæli forsetans væru ekki við hæfi. „Mikill meirihluti Bandaríkjamanna vill eitthvað betra en þetta,“ sagði Don Bacon, fulltrúadeildarþingmaður flokksins frá Nebraska sem taldi ummæli Trump „ókristileg“ við blaðið Politico. Refsuðu þeim sem töluðu illa um Kirk Skammt er liðið frá því að Trump og repúblikanar beittu sér af hörku gegn hverjum þeim sem hallmælti Charlie Kirk, áhrifavaldi af hægri væng bandarískra stjórnmála, eftir að hann var ráðinn af dögum í haust. Talið er að í það minnsta hundruð manna víðsvegar um Bandaríkin hafi verið reknir eða þeim refsað fyrir að tjá sig um Kirk með hætti sem fór fyrir brjóstið á repúblikönum. Þá var Trump sjálfur gagnrýndur fyrir að láta morðið á Rob Reiner, ástsælum Hollywood-leikstjóra, í desember snúast um hann sjálfan. Fór forsetinn háðulegum orðum um Reiner og tengdi morðið við andúð leikstjórans á honum. Hreinsaði Trump ekki af sök Trump hefur ítrekað haldið því fram í gengum tíðina að rannsókn Mueller á ætluðum tengslum framboðs hans við Rússa hafi hreinsað hann af allri sök. Í sömu andrá hefur hann fullyrt að rannsóknin sjálf hefði verið „nornaveiðar“ sem byggðu á „gabbi“ um að Rússar hefðu reynt að hafa afskipti af forsetakosningunum árið 2016 með það fyrir augum að hjálpa Trump til sigurs. Engu að síður þrætti Mueller sjálfur sérstaklega fyrir það að skýrslan hreinsaði Trump af sök, jafnvel þótt hann hefði verið afar tregur í taumi að ræða rannsókna sína efnislega við þingmenn eða almenning. Rannsóknarskýrsla Mueller leiddi í ljós að nánustu ráðgjafar Trump og ýmsir starfsmenn framboðsins hefðu átt í fjölda samskipta við útsendara Rússa í aðdraganda forsetakosninganna fyrir tíu árum. Þeir hefðu vænst þess að njóta góðs af tilraunum Rússa til afskipta af kosningunum. Niðurstaða Mueller var þó að ekki yrði sýnt fram á að framboðið hefði bókstaflega lagt á ráðin með rússneskum útsendurum. Þá lagði rannsakandinn ekki til að Trump yrði ákærður fyrir að reyna að hindra rannsóknina þar sem hann studdist við lögfræðiálit dómsmálaráðuneytisins um að ekki væri hægt að ákæra sitjandi forseta. Mueller var einnig afdráttarlaus, líkt og bandaríska leyniþjónustan hefur verið í heild, um að Rússar hafi sannarlega reynt að hafa áhrif á úrslit forsetakosninganna árið 2016 með ýmsum hætti, þar á meðal samfélagsmiðlaundirróðri.
Donald Trump Bandaríkin Rússarannsóknin Rússland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira