Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Árni Sæberg skrifar 20. mars 2026 11:35 Ine Eriksen Søreide, til vinstri, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Getty/Ullstein Bild Formaður norska íhaldsflokksins Høyre, systurflokks Sjálfstæðisflokksins, telur að Norðmenn ættu að sækja um inngöngu í Evrópusambandið, meðal annars með vísan til mögulegrar umsóknar Íslendinga um inngöngu.
Þetta kemur fram í viðtali við Ine Eriksen Søreide formann Høyre í Politico. Norðmenn sóttu um aðild að ESB árið 1992 en tveimur árum seinna höfnuðu Norðmenn inngöngu í þjóðaratkvæðagreiðslu. 52 prósent greiddu atkvæði gegn inngöngu og 48 prósent með. Noregur hefur verið aðili að EES-samningnum frá sama ári. „Að mínu mati og mati flokksins míns væri okkur best borgið með fullri aðild að ESB. Ég hef talað stöðugt um þörfina fyrir uppbyggilega umræðu sem byggir á ESB eins og það er í dag, ekki eins og það var árið 1994 og sagt mjög skýrt og greinilega að hagsmunir Noregs liggi innan 27 ríkja sambandsins,“ er haft eftir Søreide. Vísar til verndartollamálsins Søreide vísar helst til öryggis- og varnarmála sem ástæðu fyrir inngöngu í ESB, sér í lagi þeirrar hættu sem stafar af Rússum þessi dægrin. Hún nefnir einnig nýlega deilu ESB-ríkjanna og EES-ríkjanna vegna verndartolla sambandsins á verndartolla á innflutt járnblendi. „Þetta sýndi mjög skýrt að að við erum hluti af innri markaðinum en það hjálpar ekki ef eitthvað kemur að utan, eins og þessar verndarráðstafanir.“ Í kjölfar verndartollamálsins jókst andstaða við inngöngu í ESB meðal Norðmanna. Breytt staða ef Ísland gengur í ESB Þá er haft eftir henni að möguleg umsókn Íslands um inngöngu í ESB sé annar hvati fyrir Norðmenn að ganga í sambandið. „Ef Ísland ákveður síðan í þjóðaratkvæðagreiðslu að hefja viðræður að nýju, þá er staðan allt önnur. Ég er ekki að gefa í skyn að það sem Ísland gerir muni í sjálfu sér breyta viðhorfi Norðmanna, en það getur leitt til ákveðinna stofnanabreytinga og einnig annars konar nálgunar fyrir ESB, sem gerir það erfiðara fyrir okkur að vera fyrir utan.“ Guðrún sótti landsfund á dögunum Líkt og áður segir er Høyre systurflokkur Sjálfstæðisflokksins en Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sótti landsfund Høyre á dögunum, líkt og hún greindi frá á Facebook. „Hinn ástsæli leiðtogi Erna Solberg hætti sem formaður eftir 22 ár í embætti og við tók Ina Eriksen Søreide,“ sagði Guðrún.
Noregur Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Verndarráðstafanir ESB vegna járnblendis Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira