Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Atli Ísleifsson skrifar 19. mars 2026 13:51 Styttan Venus frá árinu 1970. Styttan er 2,2 metrar á hæð og rúmlega 2,6 metrar á breidd. Rvk/Kvennaár Til stendur að reisa minnisvarða sem heiðrar sögu og framlag Rauðsokkahreyfingarinnar í baráttunni fyrir jafnrétti, félagslegu réttlæti og bættum lífskjörum á Íslandi. Minnisvarðanum verður komið fyrir í Hljómskálagarðinum í sumar.
Þetta var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur í gær. Um er að ræða endurgerð á Venus eða Sáttinni sem gerð var af Jóni Benediktssyni fyrir leikmynd Messíönu Tómasdóttur fyrir leiksýninguna Lýsisströtu árið 1970. Leikstjóri sýningarinnar var Brynja Benediktsdóttir. Reykjavíkurborg og fulltrúaráð verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík skrifuðu í október síðastliðnum undir viljayfirlýsingu um að setja upp minnismerki í borgarlandi Reykjavíkur til að heiðra framlag Rauðsokkahreyfingarinnar. Reykjavíkurborg Upphaflega styttan frá 1970 Upphaflega styttan var fengin að láni 1. maí 1970 þegar konur á rauðum sokkum ákváðu að fylkja liði í kröfugöngu verkalýðsins í Reykjavík og markaði sá viðburður upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar. Ákveðið var að minnismerkið yrði staðsett „á áberandi, aðgengilegum og merkingarbærum stað í borginni í samráði við gefanda verksins“. Hefur ráðið nú samþykkt stað í Hljómskálagarðinum fyrir verkið. Styttunni hefur verið fundinn staður í Hljómskálagarðinum. Reykjavíkurborg 28 daga að þorna Í viljayfirlýsingunni segir að verkefninu sé ætlað að eiga þátt í að styðja við menningarlega sjálfsmynd Reykjavíkur sem jafnréttisborg og vera hluti af víðtækari viðleitni til að gera sýnilegt framlag kvenna í opinberu rými. Tíma- og verkáætlun gerir ráð fyrir að undirbúningur fyrir mótagerð styttunnar hefjist í þessum mánuði. Unnið verði að því að vinna styttuna í vinnustofu Hallsteins Sigurðarsonar í Breiðholti. Styttan verði svo steypt í maí eða júní, en áætlað er að steypan þurfi 28 daga til að þorna. Síðan verði sökkull lagður og styttunni komið fyrir á honum í júlí næstkomandi.
Reykjavík Borgarstjórn Styttur og útilistaverk Kvennafrídagurinn Kvennaverkfall Jafnréttismál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira