Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. mars 2026 13:03 Þrátt fyrir að matvöruverð hafi hækkað eru bananar ódýrari. Vísir/Vilhelm Verð á matvöru hækkaði um tæp 0,7 prósent á milli mánaða samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ. Mánaðarhækkunin er þvert á vöruflokka.
Uppsöfnuð hækkun á árinu nemur tæpum tveimur prósentum. Matvöruverð hefur því hækkað meira á fyrstu þrem mánuðum ársins en í byrjun síðasta árs. Vöruflokkarnir sem hækkuðu hvað mest eru unnar kjöt- og mjólkurvörur en sælgæti og aðrar dýraafurðir hækka einnig. Svínakjöt, nýtt eða frosið, hækkaði mest og þar á eftir unnið, reykt og saltað kjöt. Appelsínur, epli og bananar lækkuðu í verði auk sykurs og sveppa. Hækkaði mest í Extra Það sem af er ári mælast mestar hækkanir í Fjarðarkaupum, eða þrjú prósent. Þá hefur hefur vöruverð lækkað um 2,4 prósent það sem af er ári. „Gera verður þann fyrirvara að mælingar í Fjarðarkaupum fyrir marsmánuð liggja ekki fyrir við vinnslu þessarar fréttar og er því miðað við febrúartölur í þeirra tilfelli,“ segir í skýrslunni. Ef litið er á verðhækkanir á milli febrúar og mars hækkaði verðið mest í verslunum Extra, alls um 7,6 prósent. Þar á eftir koma Krambúðin með 1,4 prósenta hækkun og Nettó með 1,3 prósenta hækkun. Verðið hækkaði minnst í verslunum Krónunnar og Prís, eða um 0,3 prósent.
Matur Neytendur Verðlag Mest lesið Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Atvinnulíf ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira