Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Lovísa Arnardóttir skrifar 13. mars 2026 10:11 Þættirnir SWAT, Grantchester og Knutby voru sýndir fyrir vatnaskil og þykja ekki við hæfi barna undir 12 ára. Fjölmiðlanefnd hefur lagt 500 þúsund króna stjórnvaldssekt á Sýn hf. fyrir að hafa brotið gegn grein fjölmiðlalaga um vernd barna gegn skaðlegu efni með sýningu úr þremur þáttaröðum fyrir klukkan 21 og 22 sem þykja ekki við hæfi barna undir tólf ára. Fjölmiðlanefnd kannaði málið eftir að þeim barst kvörtun um sýningu sjónvarpsefnisins.
Í ákvörðun Fjölmiðlanefndar kemur fram að um er að ræða sýningu þáttar úr þáttaröðinni Knutby sunnudaginn 31. ágúst 2025 kl. 20:55, þáttar úr þáttaröðinni Grantchester mánudaginn 1. september 2025 kl. 20:25 og þáttar úr þáttaröðinni S.W.A.T. fimmtudaginn 4. september 2025 kl. 20:05 á sjónvarpsstöðinni SÝN. Þáttaraðirnar hafa allar fengið aldursmerkinguna „12“ samkvæmt hollenska aldursmatskerfi Kijkwijzer frá NICAM í Hollandi og eru því ekki taldar við hæfi barna yngri en 12 ára. Samkvæmt fjölmiðlalögum er heimilt eftir klukkan 22 föstudags- og laugardagskvöld og eftir klukkan 21 önnur kvöld vikunnar og til klukkan fimm á morgnana að miðla efni í línulegri dagskrá sem ekki er talið við hæfi barna að því tilskildu að á undan því sé birt skýr viðvörun og það sé auðkennt með sjónrænu merki, þegar um miðlun myndefnis er að ræða, allan þann tíma sem efninu er miðlað. Í ákvörðuninni segir að ákvæðið hafi í daglegu tali verið kallað vatnaskilaákvæðið þar sem skilgreind tímasetning marki „vatnaskil“ varðandi það hvenær heimilt er að sýna efni sem ekki er við hæfi barna. Fjölmiðlanefnd hafi túlkað ákvæðið með þeim hætti að óheimilt sé að sýna myndefni sem fengið hefur aldursmerkinguna „12“ og hærra fyrr en eftir klukkan 22 á föstudags- og laugardagskvöldum og eftir kl. 21 á virkum dögum og sunnudögum. Dagskráin geti breyst miðað við lengd frétta og Ísland í dag Fjölmiðlanefnd sendi Sýn bréf varðandi sýningu þáttanna og í svarbréfi Sýnar, í október, kom fram að þar væri lögð rík áhersla á að starfa í fullu samræmi við ákvæði laga með sérstakri áherslu á þá mikilvægu skyldu að vernda börn gegn skaðlegu efni. Sýn væri kunnugt um „vatnaskilaákvæðið“ og leitaðist við að virða það og túlkun nefndarinnar. Bent er á í bréfinu að dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar geti breyst eftir því hversu langur fréttatími og Ísland í dag er. Breytingin geti numið allt frá fimm til fimmtán mínútum og svo vísað í töflu sem sýndi að þættirnir hafi verið áætlaðir á dagskrá á ákveðnum tíma en hafi farið í sýningu síðar. Áætlaður sýningartími og rauntími. Fjölmiðlanefnd Í bréfinu kom einnig fram að þættirnir fælu ekki í sér efni sem teldist sérlega íþyngjandi eða hættulegt börnum, heldur efni sem hlotið hefði aldursmerkinguna „12“, meðal annars vegna þema, söguþráðar eða vægra atriða sem gætu vakið ótta eða ekki hentað yngri börnum. Í bréfi Sýnar sagði enn fremur að í kjölfar erindis Fjölmiðlanefndar hefði fjölmiðlaveitan farið yfir verklagsreglur sínar hvað varðar aldursgreiningu og gripið til tiltekinna aðgerða. Í því sambandi hefði Sýn styrkt verklag við aldursmerkingar. Aldursmat á öllum innfluttum þáttum yrði tvítryggt, annars vegar af framleiðsludeild og hins vegar af dagskrárdeild áður en efni færi í útsendingu. Einnig yrðu útsendingartímar á efni með aldursmerkinguna „12“ eða hærra læstir svo ekki væri hægt að færa útsendingartíma fyrir vatnaskil. Þá hefði átt sér stað upprifjun á verklagi við aldursmerkingar fyrir starfsfólk. Vatnaskil ekki á sama tíma á virkum dögum og um helgar Í lok bréfsins kom fram að Sýn ítrekaði að vernd barna væri og yrði forgangsmál í starfsemi fjölmiðlaveitunnar. Sýn liti á eftirlit Fjölmiðlanefndar sem mikilvægan þátt í að viðhalda háum kröfum á íslenskum fjölmiðlamarkaði og treysti því að skýringar og aðgerðir fjölmiðlaveitunnar sýndu fram á einlægan vilja til að fylgja lögum og reglum í hvívetna. Nefndin áréttar í ákvörðun sinni til Sýnar að vatnaskilin séu ekki á sama tíma á virkum dögum og um helgar og að óheimilt sé að miðla myndefni, sem ekki telst við hæfi barna yngri en 12 ára, í línulegri dagskrá fyrr en eftir kl. 22 á föstudags- og laugardagskvöldum. „Það nægir því ekki að læsa dagskrárliði með aldursmerkinguna „12“ eða hærra kl. 21 á föstudags- og laugardagskvöldum þar sem vatnaskil eru þá kl. 22,“ segir í ákvörðuninni. Víkja ekki frá sekt Í ljósi þessa telur nefndin að Sýn hafi verið óheimilt að miðla þessum þáttum fyrir klukkan 21 þessa daga í ágúst og september. Nefndin telur jafnframt ekki tilefni til að falla frá sektarákvörðun í málinu þar sem þau telja að Sýn hafi átt að vera fullkunnugt um þær reglur sem gilda. Því ákveður nefndin að leggja stjórnvaldssekt á Sýn hf. og taldi hæfilegt að sektin næmi 500.000 kr. Í ákvörðun kemur fram að nefndin telji ákvörðunina þannig taka mið af eðli brotsins og atvikum máls að öðru leyti. Vísir er í eigu Sýnar.
Fjölmiðlar Sýn Börn og uppeldi Bíó og sjónvarp Neytendur Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira