„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Kristján Már Unnarsson skrifar 11. mars 2026 21:12 Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. Ívar Arnarsson Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins.
Þótt Ísland sé fjarri vígaslóð hefur stríðið áhrif á íslensk fyrirtæki. Sennilega einna mest á fyrirtæki með höfuðstöðvar í Kópavogi, Air Atlanta. „Miðausturlönd hafa náttúrulega verið eitt af okkar stærstu markaðssvæðum í áratugi,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, í kvöldfréttum Sýnar. Boeing 747-400 þota Air Atlanta framan við pílagrímaflugstöðina í Jedda í Sádi-Arabíu.KMU Þannig er Air Atlanta núna með átta breiðþotur í Sádi-Arabíu á samningi við Saudia-flugfélagið, fjórar farþegaþotur og fjórar fraktþotur. „Við erum með hartnær fjörutíu prósent af flotanum sem annaðhvort er staðsettur í Sádi-Arabíu eða flýgur í gegnum Miðausturlönd, svona að staðaldri. Þannig að já, þetta er sannarlega eitthvað sem hefur áhrif,“ segir Baldvin. Við inngöngudyrnar sjá farþegar að flugvélarnar eru reknar af Air Atlanta.kmu Í byrjun árásar Bandaríkjanna og Ísraels á Íran voru þrjár þotur Air Atlanta staðsettar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. „Eina flugvél sem er enn þar bara inni í skýli í viðhaldi, reglubundnu viðhaldi, og tvær vélar sem enduðu þar tímabundið. En við náðum þeim út bara á örfáum dögum liðnum.“ Baldvin segir félagið með hartnær sexhundruð manns að störfum í Miðausturlöndum, þar af séu hátt í eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eins og fram kemur hér í frétt Sýnar: „Eina sem skiptir máli í rauninni er bara öryggi okkar fólks og að allt fari vel fram. Þannig að við förum að öllu með gát. Við erum í þéttu sambandi við okkar fólk. Við gerum reglulegar öryggisúttektir, erum í stanslausu sambandi við öryggisyfirvöld, bara yfirvöld á viðkomandi stöðum.“ -Þið hafið ekki lent beinlínis í hættuástandi? „Nei, við höfum nú blessunarlega ekki gert það. Við förum að öllu með gát, eins og ég segi. Það hefur komið fyrir að lofthelgi hafi verið lokað tímabundið. Það hefur komið fyrir að vél hafi farið í biðflug í ákveðinn tíma meðan gengið var úr skugga um að allt væri öruggt og svo höfum við haldið áfram.“ Boeing 777-200 þota Air Atlanta á flugvellinum í Jedda. Flugvélarnar eru merktar Saudia-flugfélaginu, kaupanda þjónustunnar.Egill Aðalsteinsson -Er þetta að skaða ykkur fjárhagslega? „Já, já, þetta gerir það að sjálfsögðu en ekkert sem að þú ert að horfa til. Maður svona auðvitað vonar að þetta sé tímabundið ástand,“ svarar Baldvin. Framundan er eitt stærsta árlega verkefni félagsins, pílagrímaflugið, sem hefjast á um miðjan apríl. „Maður auðvitað vonar að ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs verði orðið stöðugra og betra þegar þar að kemur,“ segir forstjóri Air Atlanta. Fjallað er um Atlanta-flugfélagið í 18. þætti Flugþjóðarinnar sem áskrifendur geta núna nálgast á streymisveitunni Sýn+.
Air Atlanta Fréttir af flugi Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Sádi-Arabía Tengdar fréttir Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42 Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra. 18. júlí 2024 21:21 Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. 8. febrúar 2026 08:00 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent „Svívirðileg svik“ Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Sjá meira
Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42
Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra. 18. júlí 2024 21:21
Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. 8. febrúar 2026 08:00