Viðskipti innlent

Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Anna Bergmann hefur tekið við sem nýr markaðsstjóri World Class og Laugar Spa.
Anna Bergmann hefur tekið við sem nýr markaðsstjóri World Class og Laugar Spa.

Anna Bergmann hefur tekið við af Birgittu Líf Björnsdóttur sem markaðsstjóri hjá World Class og Laugum Spa. Birgitta vildi ekki gefa upp hvað tæki við en sagði það mundu koma fljótlega í ljós.

Viðskiptablaðið greindi fyrst frá ráðningu Önnu og Birgitta staðfesti svo í samtali við fréttastofu að Anna væri að taka við hennar stöðu. 

„Það kemur í ljós von bráðar,“ sagði Birgitta aðspurð um næstu skref á ferli hennar.

Anna Bergmann hefur síðastliðin þrjú og hálft ár gegnt starfi markaðsstjóra hjá Slippfélaginu þar sem hún sá um stefnumótun og framkvæmd markaðsmála. Anna er með B.Sc.-gráðu í Fashion Business Communication and Media frá Istituto Marangoni í Mílanó og er viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademías.

„Spennt fyrir komandi tímum og að taka þátt í áframhaldandi þróun World Class og Laugar Spa. Fyrirtækin hafa byggt upp sterk vörumerki og skýra framtíðarsýn og ég hlakka til að vinna með öflugu teymi að áframhaldandi uppbyggingu og þróun markaðsstarfs þeirra,“ sagði Anna um tíðindin í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×