Hagkerfið allt í hættu Birgir Olgeirsson skrifar 3. mars 2026 13:12 Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segir að almenningur hljóti að fara að opna augun fyrir mikilvægi olíunnar sem sé undirstaða allrar framleiðslu í heiminum. Atburðir síðustu daga sýni fram á það og geri hugmyndir um kolefnishlutleysi árið 2030 óraunhæfar. Vísir/Vilhelm „Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran. „
Þetta snýst ekki bara um hvað bensínið mun kosta á bílana okkar heldur hvaða áhrif þetta mun hafa á heildarhagkerfi heimsins. Það er vandfundin sú vara sem ekki er annaðhvort framleidd eða flutt með olíu,“ segir Þórður. Skammtímaáhrifin verði ekki mikil en langtímaáhrifin verði gríðarleg. „Þetta er grafalvarleg staða,“ bætir hann við. Flutningskostnaður tvöfaldast Strax í gær tvöfaldaðist verð á olíuflutningsskipum og flutningskeðjur hafi rofnað. Nú þegar vanti daglega 20 milljónir olíutunna sem ekki skila sér í gegnum Hormussund og birgðastaðan sé ekki þannig að markaðurinn þoli það mjög lengi. „Frá því í gær og fram eftir deginum í dag hefur olíuverð rokið upp um 300 dollara á tonnið og hefur verið í kringum þúsund dollara,“ segir Þórður. Gallon af bensíni hafði hækkað um 25 sent bara í gær. Áhrifin af átökunum tengdum Íran munu reynast hagkerfinu ansi afdrifarík að mati Þórðar. Bensínsverð muni vafalaust hækka en áhrifin á heildarhagkerfi heimsins verði mun meiri. Vísir/Vilhelm „En ég ítreka, eitt er að hafa áhyggjur af því hvað bensínið kostar á bílinn en það sem verður mun afdrifaríkara er hvaða áhrif þetta hefur á heildarhagkerfi heimsins. Flutningur, aðföng og framleiðsla, allt mun þetta hækka í verði. Gasið í Bretlandi hækkaði um 50% á einum degi í gær. Gasið er einmitt notað til að framleiða áburð, þannig að áburðarverð er að fara að rjúka upp.“ Forstjórinn skýtur á borgarstjóra Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri skrifaði nýverið undir samning sem kveður á um að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og takmarka framleiðslu þess. Borgarráð staðfesti síðan viljayfirlýsinguna á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag. Samningurinn nefnist Fossil Fuel Non-Proliferation Treaty en borgarstjóri segir hann í samræmi við loftslagsmarkmið Reykjavíkur, þar á meðal markmið um kolefnishlutleysi árið 2030. Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, við undirritun viljayfirlýsingarinnar.Reykjavík/Róbert Reynisson Þegar Þórður er spurður út í áhrif þessara hækkana hér heima fyrir segir hann Íslendinga lítið annað geta gert en að fylgjast með stöðunni. Hann nefnir hins vegar að það skjóti skökku við að sjá borgarstjóra skrifa undir slíka viljayfirlýsingu. „Það hljóta allir að opna augun fyrir því hvað olían er mikilvæg. Hún er undirstaðan í öllu okkar efnahagskerfi, sem gerir hugmyndir á borð við kolefnishlutleysi árið 2030 óraunhæfar. Þessir atburðir síðustu daga tengdir Íran, við munum svo sannarlega finna fyrir afleiðingum af þeim á næstunni.“
Íran Bensín og olía Reykjavík Loftslagsmál Tengdar fréttir Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði töluvert í morgun vegna átaka tengdra Íran og röskunar á olíuflutningi frá Persaflóasvæðinu. 3. mars 2026 11:33 Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira
Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði töluvert í morgun vegna átaka tengdra Íran og röskunar á olíuflutningi frá Persaflóasvæðinu. 3. mars 2026 11:33