Verndum börn gegn ofbeldi á netinu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar 3. mars 2026 08:00 Börn og ungmenni verja mörg hver miklum tíma á netinu. Þar eiga þau samskipti, mynda tengsl og móta sjálfsmynd sína. Stafrænn veruleiki þeirra felur þó í sér raunverulegar hættur sem samfélagið má ekki líta fram hjá. Baráttan gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi fer í auknum mæli fram á þessum vettvangi. Kynferðisleg áreitni, dreifing myndefnis án samþykkis, stafrænt einelti og misnotkun nýrrar tækni eru áskoranir sem við verðum að mæta af festu og framsýni. Ný forvarnaáætlun með skýra áherslu á stafrænt umhverfi Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja forvarnaáætlun gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi meðal barna og ungmenna til ársins 2030. Í henni er lögð sérstök áhersla á stafrænt umhverfi barna, aukið stafrænt læsi og fræðslu um samþykki og mörk í netheimum. Við ræddum við ungmennin sjálf við gerð áætlunarinnar og skilaboð þeirra voru skýr um að fræðslan þyrfti að endurspegla raunveruleika þeirra. Foreldrar kalla líka eftir stuðningi og fræðslu og fagfólk sem starfar með börnum þarf að búa yfir þekkingu til að greina og bregðast við stafrænu ofbeldi. Foreldrar og skólar víða um land hafa átt sömtöl um símanotkun barna, skjáreglur og ábyrgð í stafrænum samskiptum. Sú þróun er jákvæð og sýnir að samfélagið er að vakna til vitundar um að netöryggi barna krefst sameiginlegrar stefnu og skýrra viðmiða, bæði heima og í skólum. Samfélagslöggæsla sem brú milli heimila og skóla Í áætluninni er sérstök áhersla lögð á að efla hlutverk samfélagslöggæslu í forvörnum. Með því að styrkja tengsl samfélagslögreglu við skóla, börn og foreldra og skýra boðleiðir þegar upp koma áhyggjur, getum við gripið fyrr inn í og byggt upp traust. Forvarnir snúast ekki eingöngu um lagasetningu heldur um nærveru, samtal og sýnileika. Samfélagslöggæsla gegnir þar lykilhlutverki – bæði í fræðslu og skjótum viðbrögðum þegar merki um stafrænt ofbeldi koma fram. Með reglulegri viðveru í skólum og opnu samtali við foreldra getur samfélagslöggæslan einnig stutt við þær reglur og viðmið sem skólasamfélagið setur um ábyrga símanotkun og nethegðun. Sameiginlegt verkefni samfélagsins Netið er hluti af daglegu lífi barna rétt eins og fullorðinna. Öryggi þeirra á netinu er því eitt stærsta hagsmunamál samtímans. Það er sameiginlegt verkefni stjórnvalda, skóla, foreldra og samfélagsins alls að tryggja að börn og ungmenni geti þroskast og átt samskipti í stafrænum heimi án þess að óttast ofbeldi eða áreitni. Ég mun áfram beita mér af fullum þunga í þeirri baráttu. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Börn og uppeldi Símanotkun barna Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira