Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Eiður Þór Árnason skrifar 25. febrúar 2026 17:33 Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hafnað ásökunum sem tengjast Epstein. Getty/Dimitrios Kambouris Lykilgögn sem tengjast ásökun konu á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta vantar í gagnasafnið sem bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur birt í tengslum við mál kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Konan gaf sig fram eftir að Epstein var handtekinn og sagðist hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu bæði Trumps og Epsteins á níunda áratugnum þegar hún var ólögráða.
The New York Times greinir frá þessu og segir stuttlega minnst á ásökun konunnar á einum stað í skjölunum. Hún hafi greint frá þeim árið 2019 en nokkur minnisblöð sem tengist frásögn hennar vanti í umfangsmikla gagnasafnið sem birt hefur verið opinberlega. Vísað er til minnisblaðanna í yfirlitsskrá yfir rannsóknargögn sem tengjast frásögn konunnar. Samkvæmt þeirri skrá framkvæmdi bandaríska alríkislögreglan FBI fjórar yfirheyrslur í tengslum við fullyrðingar hennar og skrifaði samantekt um hverja þeirra. Þrátt fyrir þetta er aðeins að finna eina samantekt úr yfirheyrslu, þar sem hún lýsir ásökunum á hendur Epstein. Hinar þrjár samantektirnar vantar, samkvæmt greiningu New York Times. Í opinberu skjölunum sé heldur ekki að finna minnispunkta úr yfirheyrslunum sem áðurnefnd yfirlitsskrá gefi einnig til kynna að hafi verið hluti af skjalasafninu. Dómsmálaráðuneytið birti sambærilega minnispunkta úr yfirheyrslum FBI yfir öðrum mögulegum vitnum og fórnarlömbum, að sögn New York Times. Fréttastofa NPR greinir frá því að konan hafi nafngreint Trump sérstaklega í ásökunum sínum. Hún hafi lýst því að um árið 1983, þegar hún var um 13 ára gömul, hafi Epstein kynnt hana fyrir Trump, „sem í kjölfarið þvingaði höfuð hennar niður að berum getnaðarlim sínum sem hún beit síðan í. Trump hafi brugðist við þessu með því með því að kýla hana í höfuðið og reka hana út.“ Svöruðu því ekki hvers vegna skjölin vantaði Óljóst er hvers vegna gögnin voru ekki birt. Dómsmálaráðuneytið sagði í yfirlýsingu til New York Times á mánudag að „einu gögnin sem hafi verið haldið eftir hafi annað hvort verið háð þagnarskyldu eða verið afrit af öðrum skjölum.“ Í nýrri yfirlýsingu á þriðjudag benti ráðuneytið á að birtingu gagna gæti sömuleiðis hafa verið sleppt vegna „yfirstandandi alríkisrannsóknar.“ Embættismenn svöruðu New York Times því ekki með beinum hætti hvers vegna minnisblöðin sem tengjast fullyrðingu konunnar voru ekki birt. Bandaríski miðillinn bendir á að lýsing konunnar á því að hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu Trumps á níunda áratugnum sé ein af mörgum óstaðfestum ásökunum á hendur þekktum mönnum, þar á meðal forsetanum, sem finna megi í þeim milljónum skjala sem dómsmálaráðuneytið hafi birt. Þegar skjölin voru gerð opinber seint í janúar lýstu embættismenn því yfir að safnið innihéldi allt efni sem almenningur hefði sent til FBI. Trump hefur ítrekað neitað sök í málum tengdum Epstein. Í yfirlýsingu á þriðjudag sagði Abigail Jackson, talskona Hvíta hússins, að Trump hefði „verið fullkomlega sýknaður af öllu sem tengist Epstein.“ „Sum skjölin innihalda ósannar og æsifréttalegar fullyrðingar um Trump forseta sem voru sendar til FBI rétt fyrir kosningarnar 2020,“ sagði dómsmálaráðuneytið í yfirlýsingu þegar Epstein-skjölin voru birt og fullyrti að slíkar fullyrðingar væru „tilefnislausar og rangar.“ Týndu skjölin hafa vakið upp frekari spurningar um hvernig dómsmálaráðuneytið hefur staðið að birtingu Epstein-skjalanna. Birtingarinnar var krafist með lögum sem Trump undirritaði á síðasta ári eftir þrýsting frá báðum flokkum á þingi. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Veður „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Innlent Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Erlent „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Innlent Fleiri fréttir Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Sjá meira