Loka hvorki fornmáladeildinni né hætta latínukennslu Lovísa Arnardóttir skrifar 23. febrúar 2026 13:44 Sólveig segir stjórnendur berjast fyrir því að halda fornmálabrautinni gangandi en aðsóknin sé afar dræm. Aðsend og Vísir/Vilhelm Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, segir ekki standa til að loka fornmáladeild skólans. Af um 700 nemendum Menntaskólans í Reykjavík eru aðeins níu skráðir á fornmálabraut, sjö á fornmálabraut I og tveir á fornmálabraut II. Sólveig segir að breyta eigi fyrirkomulagi tungumálakennslu á máladeild skólans í tilraun til að laða fleiri nemendur að brautinni.
Böðvar Stefánsson, nemandi við MR, skrifaði grein á Vísi um helgina þar sem hann sagði það áhyggjuefni að leggja ætti niður latínukennslu á fyrsta ári og að með því væri í raun verið að leggja fornmáladeildina niður. „Til þessa hafa nemar í fornmáladeild lært inngang að latínu í eitt ár og síðan framhald í tvö ár. Með því að skera fyrsta árið framan af verður aldrei um alvöru fornmáladeild að ræða. Hætt er við því að við í 2009 árgangnum verðum síðasti hópurinn til að vera í fornmáladeild. Að mínu mati er þetta afar ósanngjarnt gagnvart framtíðarnemendum skólans sem hafa kannski mikinn áhuga á fornum tungumálum og menningu,“ segir Böðvar í grein sinni. Hann sagðist telja að ástæðan fyrir þessari breytingu væri sparnaður. „Það finnst mér vera metnaðarlaus sparnaðaraðgerð þar sem einu mikilvægasta einkenni skólans er hent út í buskann. Vonandi munu gamlir og nýir nemendur MR standa saman um að verja þessa sögulegu braut,“ sagði hann að lokum í grein sinni. Máladeild skólans skiptist á öðru ári í nýmála- og formáladeild. Í fornmáladeild er mikil áhersla lögð á klassíska menntun í fornmálunum, latínu og grísku. Auk þess er kennsla í fornfræði og málvísindum, auk grunngreina máladeildar. Í nýmáladeild er lögð áhersla á nýmál og félagsfræði. Nemendur bæta við sig fjórða málinu, þ.e. þýsku, spænsku eða frönsku. Fámenn fornmálabraut „Við erum með fámenna fornmálabraut I. Það eru þrír nemendur á öðru ári og fjórir á lokaári,“ segir Sólveig og að almennt haldi framhaldsskólar á Íslandi ekki úti heilum deildum fyrir svo fáa nemendur. Auk þess eru tveir nemendur á fornmálabraut II en ekki hefur verið innritað á deildina síðustu ár. „Við höfum verið að berjast fyrir fornmálabrautinni og að því að fá nemendur til að skrá sig á þessa braut og að vekja áhuga hjá þeim á að læra fornmál,“ segir Sólveig og að allar breytingar á stundatöflu fyrir nýnema næsta árs séu miðaðar að því að reyna að laða fleiri nemendur á þessa braut. Sólveig bendir á að þegar framhaldsskólinn hafi verið fjögur ár hafi latína aldrei verið kennd á fyrsta ári. Þegar skólinn var svo styttur í þrjú ár hafi það breyst og latína verið kennd öll árin svo að hún yrði ekki skert. Sólveig segir marga nemendur hafa kvartað undan því að fagið sé þungt á fyrsta ári og því hafi þau ákveðið að breyta til. Á næsta ári verði því latína kennd á öðru ári í nýmáladeild og á öðru og þriðja ári í fornmáladeild. Auk þess verði kúrsi bætt við á fyrsta ári sem verður inngangur að tungumálanámi. Þar verði nemendum kennt um ýmis tungumál og þar með talið fornmál. „Nemendur í skólanum í dag munu ekki finna fyrir neinu. Þetta á bara við um nýnema sem eru að skrá sig í skólann fyrir næsta haust.“ Margra ára þróun Sólveig segir svona umræðu ekki endilega góða. Það séu nemendur núna að velja sína skóla fyrir næsta haust og stjórnendur skólans hafi reynt að tala námið upp og námsframboðið. Hún segir töluverða aðsókn í máladeildina og sem dæmi séu 36 nemendur á öðru ári á nýmáladeild og 37 á síðasta ári. Það sé því ekki hægt að segja að það sé ekki aðsókn á málabraut, aðsóknin sé bara afar dræm á fornmáladeild. „Fornmáladeildin er því miður að kólna af því að nemendur velja hana ekki,“ segir hún og að þetta hafi verið þróunin í mörg ár. „Við viljum reyna að breyta þessu með því að auka áhuga á latínu og fornmálum,“ segir Sólveig og að stjórnendur voni að í nýjum kúrsi fái nemendur innsýn og þannig hvatningu til að mögulega velja fornmáladeildina. MR ekki alltaf eins Sólveig segir skólann verða að taka breytingum og hafi gert það, til dæmis, þegar nám framhaldsskólans var stytt. „Það er meiri latína kennd við skólann í dag en 1970, til dæmis. Skólinn hefur ekki alltaf verið eins, þó að við séum íhaldssöm. Við viljum gera þetta þannig að nemendur langi að koma á máladeild og læra fornmál. Við erum búin að vera að vinna að því síðustu ár að þetta verði aðgengilegra.“ Sólveig segir mikla aðsókn í skólann síðustu ár. Þau hafi þurft að hafna nemendum og sjái fyrir sér að reyna að bæta við einum bekk til viðbótar fyrir næsta ár. Þá innritist stór árgangur eins og síðasta haust þegar stærsti árgangurinn var innritaður. „Þá verðum við búin að sprengja plássið okkar, um 700 nemendur, og skólinn hefur sjaldan verið vinsælli.“ Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um að auk nememenda á formáladeild I eru einnig tveir nemendur á formáladeild II. Uppfærð 15:42 þann 23.2.2026.
Framhaldsskólar Reykjavík Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira