Börn og vopn Helga Þórólfsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 09:02 Mér fannst vont að hlusta á utanríkisráðherra okkar í myndbandi sem tekið var upp í München, þar sem ráðherra sótti öryggisráðstefnuna 13-15. febrúar. Ég hefði viljað heyra hvernig við gætum stuðlað að öryggi með öðru en hernaði. Ég hefði viljað heyra hvernig sérstaða okkar sem herlaust ríki gæti nýst við að koma á friði. Í myndbandinu talaði utanríkisráðherra um mikilvægi þess að styðja stjórnvöld í Úkraínu við að verjast Rússum. Hún sagði m.a. að ef við ímynduðum okkur að verið væri að drepa börnin okkar hér á Íslandi, markvisst, þá myndum við vilja að aðrir kæmu okkur til hjálpar, á okkar forsendum. Það sem óttumst mest er að óvinurinn ráðist á börnin okkar og mér fannst vont að ráherra hafi gripið til þess ráðs að vekja ótta um líf barnanna okkar, til að réttlæta eða útskýra stuðning við stjórnvöld í Úkraínu. Á sama tíma talaði hún ekki um hvað íslensk yfirvöld ætla að leggja að mörkum til að bjarga börnum á Gaza. Hernaðaryfirvöld og hergagnaiðnaðurinn þurfa á því að halda að við óttumst óvin og að við upplifum að við lifum stöðugt á hættutímum. Þegar óttinn tekur yfir hverfur skynsemin og rökhugsunin. Hernaðarhyggja er safn hugmynda sem auðvelda og réttlæta skipulagt ofbeldi og meginhugmyndin er að ofbeldi leysi vanda og stuðli að öryggi. Hernaðarvæðing er ferli þar sem hernaðarhyggja fær æ meiri áhrif í hugum okkar og í samfélaginu. Fólk fer þá að óttast óvininn og trúa að hernaður veiti vernd og öryggi, án þess að fólk geri sér grein fyrir hvernig það gerist. Þegar hernaðarhyggjan er ríkjandi er ekki pláss fyrir aðrar lausnir en að ógna og/eða að beita ofbeldi. Styrkur ríkja er þá gjarnan metinn út frá fjármagni sem er eytt í heri og hergögn. Stríð eru nauðsynleg til þess að viðhalda og auka völd hernaðaryfirvalda, einkafyrirtækja í hernaði og þau halda hergagnaiðnaðinum gangandi. það er margt fólk sem hagnast á hernaði og ný ógnvænleg vopn eru þróuð í stríði. Stríðsguðinn á sér marga áhangendur og fæstir þeirra færa fórnir. Hernaðarútgjöld NATO ríkja hafa aukist ár frá ári og frá 2015 hefur aukningin verið um 30 %. Milli áranna 2023 og 2024 jukust útgjöldin um u.þ.b. 9%. Þessi aukning er ein af birtingarmyndum hernaðarvæðingar. Þetta eru svo háar upphæðir að ég næ ekki utan um tölurnar, en á árinu 2024 voru hernaðarútgjöld ríkja NATO u.þ.b. 1506 milljarðar USD eða hundrað áttatíu og fjögur þúsund milljarðar íslenskra króna. Það eru 55% af heildar hernaðarútgjöldum allra ríkja heims. https://www.sipri.org/sites/default/files/2025-04/2504_fs_milex_2024.pdf (https://milex.sipri.org/sipri). Í fréttatilkynningu frá SPIRI kemur einnig fram að tekjur af alþjóðlegri vopnasölu jukust verulega árið 2024, þar sem eftirspurn jókst m.a. vegna Úkraínu og Gaza og síauknu fjármagni sem varið er til hernaðar (fjármagni sem þarf að eyða). Samkvæmt rannsókn SIPRI á hernaðarútgjöldum og vopnaframleiðslu náðu tekjur af alþjóðlegri vopnasölu árið 2024 því hæsta sem mælst hefur samkvæmt gögnum SIPRI, þar sem framleiðendur nýttu sér mikla eftirspurn. press-release/2025/sipri-top-100-arms-producers-see-combined-revenues-surge-states-rush-modernize-and-expand-arsenal Yfirvöld í Rússlandi og Úkraínu (með framlagi vinaríkja) hafa eytt þúsundum milljarða í hernað á tæpum þremur árum (2022 -2024). Árið 2024 var þessi upphæð áætluð þrjátíu og þrjú þúsund milljarðar íslenskra króna. Allar skatttekjur Úkraínu 2024 fóru í stríðið og önnur útgjöld ríkisins voru fjármögnuð með framlögum vinaríkja til viðbótar við framlög þeirra til hernaðarins. https://www.sipri.org/sites/default/files/2025-04/2504_fs_milex_2024.pdf Hvernig hefur þetta fjármagn gagnast íbúum þessara landa og fólkinu sem býr í og austurhéruðum Úkraínu? Stríð er ekki eins og íþróttakeppni þar sem annað liðið vinnur og hitt tapar. „Sigur“ í stríði er eingöngu þeirra sem hagnast af stríði og uppbyggingu eftir stríð. Ofbeldi leiðir gjarnan af sér meira ofbeldi og eitt stríð tekur við af öðru á meðan við erum föst í viðjum hernaðarhyggjunnar. Þau sem aftur á móti tapa í stríðum eru þau börn og fullorðin sem eru skotin, sprengd, nauðgað, svelt, tekin til fanga og missa allt sitt. Þau sem tapa líka er fólkið og fjölskyldur þeirra sem er gert að drepa ókunnuga gegn vilja sínum, sama í hvaða liði þau eru. þau sem drepa, særa, eyðileggja híbýli, skóla, sjúkrahús og eru drepin eða særð á sál og líkama, tapa stríðinu. Einnig tapa þau sem líða fyrir að skatttekjur fara í hernað en ekki í menntun, menningu, velferð og heilbrigðismál. Íslensk yfirvöld ætla að leggja einn milljarð í verkefnið PURL sem er sjóður sem bandarísk yfirvöld nota til að kaupa vopn og hergögn af bandarískum fyrirtækjum, samkvæmt óskum yfirvalda í Úkraínu. (https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-02-16-framlag-islendinga-til-ukrainu-einn-tiundi-af-framlagi-dana-467086). Í stóra samhenginu skiptir framlag Íslands til vopnakaupa engu máli. því er sorglegt að við nýtum ekki sérstöðu okkar sem eina herlausa ríkið í NATO til að leita annarra leiða en að beita vopnum í samskiptum fólks og ríkja. Höfundur er með MA í friðarfræðum og MPhil í lausn ágreiningsmála og hefur starfað á herstöðvum í Afganistan auk búsetu og starfa í stríðshrjáðum löndum í Afríku, Evrópu og Asíu. Tölulegar upplýsingar eru ónákvæmar og byggja á upplýsingum frá gagnabanka Stockholm International Peace Research Institute SIPRI.org – Tölur fyrir 2025 eru ekki enn aðgengilegar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Öryggis- og varnarmál Mest lesið Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Uppskrift að lakari samkeppnishæfni fiskeldis Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Á að brenna ólesnar bækur? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnlaus hraðferð ofan í dauðadal gervigreindar – og leiðin út Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir,Ársæll Guðmundsson,Jóhanna Stella Oddsdóttir,Simon Cramer Larsen,Helga Þórðardóttir skrifar Skoðun Skilgreiningarvald mennskunnar Erna Mist skrifar Skoðun Dýrasta land heims í nafni sjálfstæðisins Inga Valgerður Henrikssen skrifar Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Ef þetta væri barnið þitt Arnar Kjartansson skrifar Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Stjórnlaus hraðferð ofan í dauðadal gervigreindar – og leiðin út Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Í upphafi skal endinn skoða Íris Eva Gísladóttir,Ársæll Guðmundsson,Jóhanna Stella Oddsdóttir,Simon Cramer Larsen,Helga Þórðardóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar um meðferð á beiðni um DNA rannsókn á mannabeinum í grafreit Lára Magnúsardóttir skrifar
Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun