Þórsarar fá nýtt íþróttahús Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. febrúar 2026 21:58 Aðstaðan til handbolta- og körfuboltaiðkunar í Hamri er komin til ára sinna. Vísir/Viktor Freyr Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi í morgun samkomulag um byggingu nýs íþróttahúss á félagssvæði Þórs. Íþróttahúsinu eru áætlaðir 4.600 fermetrar og þar af verður íþróttasalur með um 2.400 fermetra gólfflöt. Gert er ráð fyrir að það muni kosta á bilinu 3 til 4,5 milljarða króna.
Í drögum að samkomulaginu sem birt hafa verið á heimasíðu Akureyrarbæjar segir að Íþróttafélagið Þór búi við þá sérstöðu að tæplega helmingur iðkenda félagsins á aldrinum 5-19 ára geti ekki sótt æfingar á félagssvæði Þórs við Skarðshlíð. Þessir iðkendur æfi og keppi þess í stað í Íþróttahöllinni eða íþróttahúsum grunnskóla bæjarins. Vegna þess og einnig vegna fyrirhugaðrar íbúðahverfis í Móahverfi og á þéttingarreitum á upptökusvæði Þórs er brýn þörf á nýju íþróttahúsi. Gert er ráð fyrir íþróttasal með áhorfendabekkjum og aðstöðu eins og best verður á kosið fyrir leiki í efstu deild í meistaraflokki í körfubolta og handbolta, sem og mótahald yngri flokka. Einnig er gert ráð fyrir lyftingasal, æfingaaðstöðu auk forsals og afgreiðslu. Íþróttahúsið verður að framkvæmdum loknum eign Akureyrarbæjar en horft er til þess að verklegar framkvæmdir hefjist vorið 2028 og að íþróttamiðstöðin verði tilbúin til notkunar í ágúst 2031. Bærinn hyggst veita 40 milljónir króna til verkefnisins á þessu ári, 50 á því næsta og svo 600 milljónir 2028 og 900 milljónir 2029.
Þór Akureyri Akureyri Handbolti Körfubolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Fleiri fréttir Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Sjá meira