Fótbolti

Barcelona á bæði bestu ungstirnin

Sindri Sverrisson skrifar
Blómið sem Lamine Yamal skartaði í kvöld vakti athygli. Þau Vicky López eru orðin ansi vön að fagna titlum, bæði með Spáni og Barcelona.
Blómið sem Lamine Yamal skartaði í kvöld vakti athygli. Þau Vicky López eru orðin ansi vön að fagna titlum, bæði með Spáni og Barcelona. Samsett/Getty

Spánverjinn Lamine Yamal hlaut í kvöld Kopa-verðlaunin sem besti ungi fótboltamaður heims, þriðja árið í röð, á Ballon d'Or-verðlaunahófinu í London. Vicky López, sem líkt og Yamal leikur með Barcelona og spænska landsliðinu, hlaut verðlaunin í kvennaflokki.

Fimm komu til greina sem ungstirni ársins í hvorum kynjaflokki en Yamal, sem lék lykilhlutverk í heimsmeistaratitli Spánar og Spánarmeistaratitli Barcelona á þessu ári, skaraði nú fram úr í þriðja sinn. Hann er einnig tilnefndur til Gullboltans sjálfs.

Á meðal annarra sem voru tilnefndir var félagi Yamals í Barcelona og spænska landsliðinu, miðvörðurinn Pau Cubarsi, en hér að neðan má sjá hina tilnefndu.

Tilnefndir sem besti ungi leikmaður karla:

  • Pau Cubarsi, Barcelona
  • Yan Diomandé, RB Leipzig og Real Madrid
  • Lennart Karl, Bayern München
  • Lamine Yamal, Barcelona
  • Warren Zaire-Emery, PSG

Vicky López hefur verið í lykilhlutverki besta félagsliðs heims, Barcelona, og raðaði inn mörkum fyrir liðið sem vann fjórfalt í ár, þar á meðal Meistaradeild Evrópu.

Hún hefur nú unnið verðlaunin sem besti ungi leikmaðurinn tvö ár í röð.

Tilnefndar sem besti ungi leikmaður kvenna:

  • Veerle Buurman, Chelsea
  • Vicky López, Barcelona
  • Felicia Schröder, Häcken og Real Madrid
  • Clara Serrajordi, Barcelona
  • Lily Yohannes, Lyon



Fleiri fréttir

Sjá meira


×