Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 12:54 Sjúkrahúsið á Ísafirði er meðal stofnana sem fellur undir HVest. Vísir/Vilhelm Mönnun fagfólks er ein helsta áskorunin hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, líkt og víða annars staðar, samkvæmt úttekt embættis Landlæknis. Einn læknir sinnir þremur stjórnendastöðum og eru fengnir læknar frá Danmörku til að manna stöður. Þá fer rafmagnið reglulega af í húsnæði stofnunarinnar á Patreksfirði. „
Viðvarandi skortur er á læknum við stofnunina og mikill tími stjórnenda fer í að finna og ráða lækna til starfa,“ segir í úttekt embættis Landlæknis á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, eða HVest. HVest rekur tvær meginstarfsstöðvar á Ísafirði og Patreksfirði, og sjö heilsugæslusel. Þegar úttektin fór fram voru tveir sérfræðilæknar búsettir á svæðinu, báðir í fullu starfi og þarf af í fjörutíu prósenta starfi á sjúkradeildinni. Annar var ráðinn tímabundið en hinn sinnir þremur stjórnunarstöðum, allt í senn sem framkvæmdastjóri lækninga, yfirlæknir heilsugæslu og yfirlæknir sjúkradeildar. Þá sinnir læknirinn einnig læknisstörfum á sjúkradeildum og vaktþjónustu. Á Patreksfirði starfar einn læknir á hverjum tíma í verktakafyrirkomulagi. Hann vinnur sjálfur tuttugu vikur á ári og sér svo um að útvega lækna þær vikur sem hann er ekki við störf. „Til að skapa betri samfellda þjónustu á norðanverðum Vestfjörðum hefur HVest ráðið danska lækna sem starfa hjá stofnuninni í 6-12 mánuði í senn.“ Enginn svæfingarlæknir né röntgenlæknir Skortur á starfsfólki nær víða en enginn svæfingarlæknir er í föstu starfi við stofnunina. Þess í stað sér hjúkrunarfræðingur með framhaldsmenntun í svæfingarhjúkrun um svæfingarnar. Þá er enginn starfandi röntgenlæknir svo úrlestur fer fram hjá myndgreiningarlæknum hjá Röntgen Domus. „Ónóg mönnun lækna getur haft í för með sér að annað fagfólk taki á sig verkefni og ábyrgð, án þess að hafa til þess næga þekkingu,“ segir í úttektinni. Í ábendingum embættisins er tekið fram að áfram þurfi að leita leiða til þess að styrkja fagmönnun stofnunarinnar og þá sérstaklega mönnun lækna. Þar sem umdæmið er veðrasamt og einangrað er ekki alltaf hægt að koma sjúklingum á Landspítalann með flugi né akandi. Mikil starfsmannavelta getur einnig valdið því einnig að erfitt verður að halda skipulagi og vinna að umbóta- og gæðastarfi. Stjórnendur þurfi í miklum mæli að sinna klínískri vinnu svo enginn tími gefst til umbótastarfs. Starfsemin nýtur þó almennt trausts meðal notenda þjónustunnar en þeir hafa jafnframt áhyggjur af óstöðugleika í mönnum lækna. Rafmagnsleysið öryggishætta Húsnæði HVest var einnig tekið út. Á Ísafirði er húsnæði sjúkrahússins almennt gott og hentar starfseminni ágætlega. Sömu sögu er ekki að segja um húsnæðið á Patreksfirði sem er komið til ára sinna. Reglulega hefur rafmagni slegið út á heilsugæslunni en úrbætur eru hafnar eftir að forstjóri HVest hafði samband við Fjársýsluna. „Samkvæmt stjórnendum er í undirbúningi mikil endurnýjun á húsnæðinu, verkefnið er komið af stað og er að hluta fjármagnað,“ segir í úttektinni. Í tilmælum embættisins kemur fram að koma þurfi á aðgangsstýringum á stofnuninni til þess að tryggja öryggi sjúklinga og starfsmanna.
Heilbrigðismál Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Embætti landlæknis Ísafjarðarbær Vesturbyggð Mest lesið „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Fleiri fréttir Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Sjá meira