Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. febrúar 2026 08:46 Einföldustu hlutir geta orðið vísbendingar og vopn í höndum rannsakenda. Getty Gamall sófi, múrsteinar og ótrúleg samvinna urðu til þess að stúlku var bjargað úr klóm barnaníðings í Bandaríkjunum. BBC greinir frá málinu en teymi frá BBC World Service hefur fylgst með störfum rannsakenda barnaníðsmála í Bandaríkjunum, Rússlandi og víðar í fimm ár.
BBC segir rannsóknir teymisins hafa varpað ljósi á það hvernig að því er virðist ómerkileg atriði geta gefið dýrmætar vísbendingar. Þá fjallar miðillinn um stúlkuna Lucy, sem var bjargað af Greg Squire og sérhæfðu teymi sérfræðinga hjá heimavarnaráðneyti Bandaríkjanna. Myndir sem sýndu misnotkun á Lucy voru í dreifingu á djúpvefnum og nýjar stöðugt að birtast. Níðingurinn sem braut á henni var hins vegar klókur og duglegur við að klippa út af myndunum allt það sem gæti gefið augljósar vísbendingar um staðsetningu sína. Rannsakendurnir leituðu til Facebook, sem sagðist ekki getað hjálpað til við að bera kennsl á Lucy með því að bera saman andlit hennar við andlit á myndum á miðlinum. Fatnaður Lucy, bangsar og rúmföt gáfu engar vísbendingar um hvar hún væri niður komin. Það eina sem menn vissu var að hún var einhvers staðar í Norður-Ameríku, ef marka mátti innstungu á vegg á myndunum. Athugun á sófa sem einnig sást á myndunum leiddi hins vegar í ljós að hann hafði aðeins verið seldur á ákveðnum stöðum í 29 ríkjum Bandaríkjanna. Hann hafði þó verið seldur á um 40 þúsund heimila, þannig að rannsakendurnir voru litlu nær. Í örvæntingu hóf Squire að Gúggla múrsteina en á myndunum sást í beran múrvegg. Hann fann samtök múrsteinaframleiðenda, The Brick Industry Association. „Og kona í símanum var frábær. Hún sagði bara: Hvernig getur múrsteinaiðnaðurinn hjálpað?“ segir Squire. Tókst smám saman að þrengja hringinn Konan deildi mynd af veggnum með múrsteina-sérfræðingum út um öll Bandaríkin. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og meðal þeirra sem höfðu samband var John Harp, sem hafði starfað við sölu múrsteina frá 1981. Hann tjáði Squire að hann teldi að umræddir múrsteinar væru af tegundinni „Flaming Alamo“, sem hefðu verið framleiddir af fyrirtækinu hans í um 20 ár. Fyrirtækið hafði ekki haldið jafn vel utan um gögn um viðskiptavini sína eins og sófaframleiðandinn en Harp benti á að múrsteinar væru þungir og því ekki líklegir til að vera fluttir um langan veg. Squire leitaði því að kaupendum sófans sem bjuggu nálægt múrsteinaframleiðandanum og tókst að þrengja hringinn í 40 til 50 heimili. Rannsakendurnir tóku því næst að fínkemba Facebook-aðganga íbúa á umræddum heimilum og fundu þá mynd af Lucy. Það lá hins vegar ekki fyrir hver tenging hennar var við umræddan Facebook-aðgang og því var gerður listi yfir alla þá sem tengdust eiganda aðgangsins. Hús þeirra voru mynduð og Squire sendi því næst myndirnar á Harp, sem lagði mat á það hvort „Flaming Alamo“ múrsteinarnir hefðu verið notaðir við byggingu húsanna. Að lokum fundu þeir heimil þar sem múrsteinarnir virtust hafa verið notaðir og þangað sem sófi af umræddri gerð hafði verið sendur. Á heimilinu bjuggu Lucy, móðir hennar og kærasti móðurinnar, sem reyndist vera dæmdur kynferðisbrotamaður. Hann hafði nauðgað Lucy í sex ár og deilt myndunum á netinu. Squire hitti Lucy í fyrsta sinn síðasta sumar en hún er nú 20 ára gömul. „Ég veit að það hljómar klisjukennt en þetta var svar við bænum mínum,“ segir hún um björgun Squire og sveitar hans.
Bandaríkin Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Maðurinn fundinn Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Innlent Fleiri fréttir Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sjá meira