Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Kjartan Kjartansson skrifar 13. febrúar 2026 09:10 Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ræði við fréttamenn við upphaf öryggisráðstefnunnar í München í morgun. Vísir/Getty Forsætisráðherra Danmerkur segir Evrópa verði að hervæðast í ljósi þess að Bandaríkjamenn vilji segja skilið við álfuna. Hann ætlar að funda með utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Grænland á stórri öryggisráðstefnu í München.
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagðist hafa ein skilaboð þegar hún mætti á árlega öryggisráðstefnu í Bæjaralandi í morgun: hervæðingu. Stirðnandi samskipti Evrópu og Bandaríkjanna lægi eins og skuggi yfir ráðstefnunni. Þau væru þó að hennar mati eðlileg þróun í forsetatíð Donalds Trump. „Bandaríkjamennirnir hafa raunar verið mjög hreinskilnir allt frá embættistökuræðunni til nýrrar þjóðaröryggisáætlunar og hótana gegn Grænlandi. Allt hnígur í eina átt: að Bandaríkin séu á leið frá Evrópu,“ sagði Frederiksen. Evrópubúar þyrftu þess vegna að herða á hervæðingu sinni til þess að geta sinnt eigin vörnum. „Við viljum ekki að við förum hvert í sína áttina en þegar Bandaríkjamennirnir gera það getum við ekki búið áfram í heimi sem er ekki lengur til,“ sagði Frederiksen við fréttamenn og danska ríkisútvarpið hefur eftir henni. Danir hafa sérstaklega átt í erfiðu sambandi við Bandaríkjastjórn að undanförnu vegna ásælni Trump í Grænland. Bandaríski forsetinn hefur ítrekað sagt að hann ætli að klófesta Grænland með einum eða öðrum hætti. Frederiksen segir að búið sé að skipuleggja nokkra fundi með fulltrúum Bandaríkjastjórnar á ráðstefnunni, þar á meðal með Marco Rubio, utanríkisráðherra. Tugir þjóðarleiðtoga sækja öryggisráðstefnuna í München sem hefur verið haldin árlega í rúmlega sextíu ár. J. D. Vance, þá nýtekinn við sem varaforseti Bandaríkjanna, lét skömmum rigna yfir Evrópumenn í ræðu á ráðstefnunni í fyrra.
Danmörk Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Donald Trump Öryggis- og varnarmál Þýskaland Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira