Japanir halda í kjörklefana Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 10:12 Forsætisráðherra Japans dáist að Margaret Thatcher og vill verða „Járnfrú Japans“. EPA Japanir ganga í kjörklefann í dag eftir að Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, boðaði til skyndikosninga. Skoðanakannanir spá fyrir um afgerandi sigur flokks hennar.
Rétt rúmar tvær vikur eru síðan Takaichi ákvað að leysa upp þingið í landinu og boða til kosninga í skyndi. Hún var kjörin leiðtogi Frjálslynda lýðræðisflokksins í október en hann ásamt Japanska nýsköpunarflokknum mynda ríkisstjórn landsins. Skoðanakannanir sýna að flokkarnir tveir gætu náð allt að þrjú hundruð af 465 sætum neðri deildar þingsins samkvæmt BBC. Það er mikil uppsveifla í vinsældum en áður en Takaichi tók við formannsembættinu og sem forsætisráðherra höfðu tveir forsætisráðherrar flokksins sagt af sér vegna lélegs fylgis. Þetta er í fyrsta skipti í 36 ár sem Japanir leggja leið sína í kjörklefana um miðjan vetur. Snjókoma í norður- og austurhluta landsins er talin geta haft áhrif á kjörsókn. 37 lestarleiðum og 58 ferjuleiðum hefur verið lokað og 54 flugferðum aflýst. Lítur til Bandaríkjanna í stað Kína Takaichi hefur reynst sérstaklega vinsæl meðal yngri kjósenda og boðar miklar skattalækkanir. Hún dáist að Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Breta, og vill verða svokölluð járnfrú Japans. Skyndikosningarnar eru samt sem áður áhættuspil þar sem í sameinuðu stjórnarandstöðunni er fyrrverandi samstarfsflokkur Frjálslynda lýðræðisflokksins, Komeito, til lengri tíma. Komeita og Stjórnarskrárbundni lýðræðisflokkurinn í Japan hafa komið sér saman í stjórnarandstöðunni. Þá hefur Takaichi reitt Kínverja, sem eru þeirra stærstu samstarfsaðilar, til reiði með því að segja að Japanir gætu sjálfir brugðist við með eigin sjálfsvarnarliði skyldi Kína ráðast á Taívan. Þess í stað hefur hún leitað til Bandaríkjanna og lýsti Bandaríkjaforseti yfir stuðningi við Takaichi, sem er sjaldgæft fyrir bandarískan leiðtoga.
Japan Kína Bandaríkin Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira