Meryl Streep verður Joni Mitchell Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. febrúar 2026 13:18 Meryl Streep mun leika Joni Mitchell í ævisögumynd um tónlistarkonuna. Getty Stórleikkonan Meryl Streep mun leika tónlistargoðsögnina Joni Mitchell í óhefðbundinni ævisögumynd í leikstjórn Cameron Crowe. Anya Taylor-Joy hefur verið orðuð við yngri útgáfu af Mitchell en það er enn óstaðfest.
Dægurmálatímaritið Rolling Stone greindir frá ráðningu Streep og Hollywood-bloggið The InSneider hefur fjallað um samningaviðræður Taylor-Joy um leik í myndinni Síðasta kvikmyndin sem Streep lék í var Don't Look Up (2021) og svo hefur hún leikið í síðustu þremur seríum Only Murders in The Building (2023-25). Á þessu ári leikur hún í teiknimyndinni Hoppers og snýr aftur sem Miranda Priestly í The Devil Wears Prada 2. Seinna á árinu hefjast svo tökur á ævisögumyndinni um Joni Mitchell. Leikkonurnar Emily Blunt, Meryl Streep og Anne Hathaway snúa aftur í framhaldi The Devil Wears Prada 2.Vísir/AP Tónlistarframleiðandinn Clive Davis hélt sitt árlega Grammy-fyrirpartý í Los Angeles á laugardag og flutti þar ræðu þar sem hann greindi frá stjörnunum sem voru mættar. Meðal þeirra var Mitchell, sem Davis sagði að yrði leikin af Streep í mynd um söngkonuna. Rolling Stone inntu Crowe svara við tilkynningunni og staðfesti leikstjórinn fréttina með því að vísa aftur í tilkynninguna. Leikstjórinn Cameron Crowe var um tíma einn öflugasti leikstjóri Hollywood, sló í gegn með rómantísku gamanmyndinni Jerry Maguire (1996), fylgdi henni eftir með tónlistarmyndinni Almost Famous (2000) og sálfræðitryllinum Vanilla Sky (2001). Eftir að hafa leikstýrt rómantísku gamanmyndunum Elizabethtown (2005), We Bought a Zoo (2011) og Aloha (2015) hefur hann hins vegar legið í dvala. Ævisögumynd Crowe um Mitchell hefur verið í bígerð í langan tíma og verður sennilega ein hans persónulegasta mynd. Crowe og Mitchell kynntust á áttunda áratugnum þegar hann tók viðtal við hana 1979 sem blaðamaður Rolling Stone og hafa þau verið vinir síðan. Á síðustu árum hefur hann verið hálfgerður aðstoðarmaður hennar og þau unnið saman að handriti ævisögumyndar hennar undanfarin þrjú ár. Eins og áður sagði hefur Anya Taylor-Joy verið orðuð við yngri útgáfu tónlistarkonunnar og þrálátur orðrómur þess efnis verið í dreifingu. Það er þó enn óstaðfest en hlýtur að koma í ljós á næstu mánuðum.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Tónlist Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira