Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 08:14 Fréttir af norsku konungsfjölskyldunni voru áberandi á forsíðum dagblaða í gær, bæði vegna máls Mariusar Borg Høiby, og vegna samskipta móður hans Mette-Marit við Jeffrey Epstein. Getty/Julia Wäschenbach Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð hefur myndast fyrir utan héraðsdóminn í Osló þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga.
Høiby var í gær úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir að hann var handtekinn í fjórða sinn á sunnudagskvöldið, grunaður um frekari brot. Síðan í ágúst 2024 hafa mál Høiby ítrekað komist í fréttir en hann er meðal annars ákærður fyrir ofbeldi í nánu sambandi, kynferðisbrot og annað ofbeldi, brot gegn nálgunnarbanni og fíkniefnabrot svo fátt eitt sé nefnt. Gert er ráð fyrir að réttarhöld standi yfir í sjö vikur þar sem Høiby sjálfur, brotaþolar, rannsóknarlögreglumenn og fjöldi vitna munu meðal annars koma fyrir dóminn að því er fram kemur í umfjöllun NRK. Meðal gagna málsins munu vera myndbandsupptökur sem sagðar eru sýna Høiby beita ofbeldi. Fjórir af ákæruliðunum 38 eru vegna nauðgana gegn konum sem samkvæmt ákæru eru sagðar ekki hafa getað andmælt eða veitt Høiby mótspyrnu þar sem þær hafi ekki verið vakandi þegar hann braut á þeim. NRK hefur eftir Heidi Reisvang, lögmanni þriggja kvenna sem eru brotaþolar í málinu, að skjólstæðingar hennar hlakki ekki til að koma fyrir réttinn, en líti á það sem sína samfélagslegu ábyrgð. „Það er ótrúlega átakanlegt að vera brotaþoli í sakamáli. Svo bætist allt annað við í tengslum málið, eins og þetta gríðarlega fjölmiðlaálag,“ segir Reisvang. Snemma í morgun var hópur fjölmiðlamanna þegar mættur að réttinum í Osló þar sem sjö vikna löng réttarhöld yfir Mariusi Borg Høiby hefjast í dag. EPA/HEIKO JUNGE Röðin varð svo enn lengri eftir því sem líða tók á morguninn.Getty/Julia Wäschenbach
Noregur Kóngafólk Mál Mariusar Borg Høiby Mest lesið Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Erlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Sérveitin í aðgerð á Selfossi Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Fleiri fréttir Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Sjá meira