Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Jón Þór Stefánsson skrifar 24. janúar 2026 13:38 Stefán Einar Stefánsson gæti einn daginn ætlað á þing, en væri líka líklegur til að setjast að við ritstörf í franskri sveit. Vísir/Vilhelm Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður útilokar ekki að hann muni einn daginn skella sér í stjórnmálin og fara í framboð. Myndi hann skipta um starfsvettvang eða færa sig um set gæti valið þó einnig verið allt annað en pólitíkin. Hann myndi til að mynda hafa áhuga á að gerast rithöfundur í franskri sveit.
Þetta sagði Stefán Einar í viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni í morgun. Ætlar þú einhvern tímann á þing? „Ég hef ákveðið að svara þessari spurningu eins heiðarlega og ég get. Fjölmiðlamenn, og flestir þeirra sem eru að pæla í pólitík segja „Nei, nei, nei. Ég er með spennandi verkefni og það kemur ekki til greina.“ Ég ætla ekki að útiloka neitt,“ segir Stefán Einar. „Það getur vel verið að ég vakni einn daginn og hugsi: Nú ætla ég á þing! Eða, Nú ætla ég í borgarstjórn eða sveitarstjórn í Garðabæ, þar sem ég bý núna.“ Það eru þó ekki bara stjórnmálin sem heilla. „Það getur líka bara verið eitthvað allt annað. Eins og hefur nú komið fram hef ég mikinn áhuga á víni. Ég á mér draum um að eignast litla íbúð í fallegu þorpi í Champagne-héraði. Ég er með nokkur þorp sérstaklega á skotskífunni hvað það varðar. Það er hægt að fá ódýrt húsnæði í þessum litlu þorpum. Þetta eru fjögur hundruð til sex hundruð manna þorp yfirleitt,“ segir Stefán Einar. „Ég gæti alveg hugsað mér að ef einhvern tímann myndu skapast aðstæður til að flytja þangað og skrifa meira. Ég hef mjög gaman af skrifum. Ég hef skrifað bækur, og þýtt, og ritstýrt bókum. Hver veit nema að þegar ég verð þrotinn af kröftum eftir öll þessi átök af vettvangi Spursmála að ég gerist rithöfundur í franskri sveit?“ Í viðtalinu fór Stefán Einar um víðan völl. Hann ræddi meðal annars um bernskuna á Patreksfirði, námsárin í Reykjavík, og þætti sína Spursmál.
Fjölmiðlar Frakkland Alþingi Garðabær Bakaríið Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira