Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Tómas Arnar Þorláksson og Kjartan Kjartansson skrifa 22. janúar 2026 11:20 Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. vísir/vilhelm Fimm starfsmönnum og stjórnarmönnum Vélfags sem voru handteknir í aðgerðum héraðssaksóknara í gær hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Aðgerðirnar stóðu yfir í nokkrar klukkustundir. Húsleit fór fram á Akureyri og í Reykjavík á sama tíma þar sem lagt var hald á töluvert magn af rafrænum gögnum.
Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Greint var frá því í gær að fimm stjórnar- og starfsmenn Vélfags hafi verið handteknir í aðgerðum héraðssaksóknara í gær þar sem húsleit fór fram í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Akureyri og á fleiri stöðum í Reykjavík á sama tíma. Héraðssaksóknari staðfestir fjölda þeirra sem voru handteknir og segir að yfirheyrslu og skýrslutöku yfir þeim hafi lokið í gærkvöldi og þeim þar af leiðandi sleppt úr haldi. Ekki taldist ástæða til að krefjast gæsluvarðhalds. Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Vélfags, er meðal þeirra sem voru handteknir í gær. Ólöf Ýr Lárusdóttir, minnihlutaeigandi og stjórnarmaður, var einnig kölluð í yfirheyrslu í gær. Hún og eiginmaður hennar Bjarmi A. Sigurgarðsson stofnuðu Vélfag á sínum tíma og eiga um átján prósenta hlut í fyrirtækinu. Pétur Örn Sverrisson, lögmaður Ólafar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Ólafur Þór staðfestir að rannsóknin sé vegna gruns um brot fyrirtækisins gegn viðskiptaþvingunum vegna meintra tengsla eiganda Vélfags við rússneska skuggaflotann. Arion banki frysti fjármuni Vélfags í sumar á grundvelli þvingunaraðgerða Evrópusambandsins vegna tilrauna Rússlands til þess að grafa undan stöðugleika í Evrópu. Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, er talinn leppur eigenda rússnesks útgerðarfélags sem tengist svonefndum skuggaflota Rússa. Félagið átti áður meirihluta í Vélfagi. Greint var frá því á Vísi í gær að samkvæmt heimildum hafi starfsmenn fyrirtækisins unnið að því að á bak við tjöldin að stofna nýtt félag til að halda starfseminni áfram. Til hafi staðið að selja lager og tæki fyrirtækisins til annars félags fyrir slikk. Héraðssaksóknari staðfesti ekki hvort það væri tilefni aðgerða gærdagsins. Hann tekur fram að lítið sé hægt að segja um málið þar sem rannsóknin sé á viðkvæmu stigi. Rannsókninni miði vel áfram og sé á grunnstigi.
Viðskiptaþvinganir gegn Vélfagi Akureyri Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira