Dómari skapað hættulegt fordæmi fyrir ofbeldismenn Bjarki Sigurðsson skrifar 15. janúar 2026 20:30 Guðný S. Bjarnadóttir er stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi. Vísir/Lýður Valberg Samtök gegn kynbundnu ofbeldi segja alvarlegt að dómari hafi veitt ofbeldismanni skilorðsbundinn dóm fyrir brot gegn sambýliskonu og að ríkissaksóknari hafi kosið að áfrýja ekki. Maðurinn hefur nú verið ákærður fyrir að brjóta á stjúpdóttur sinni.
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sex til níu ára gömul. Þegar brotin áttu sér stað var maðurinn á skilorði eftir að hafa fengið fimm ára dóm fyrir brot í nánu sambandi, nauðgun og brot gegn kynferðislegri friðhelgi sambýliskonu sinnar, móður stúlkunnar. Brotaþoli bað um skilorðsbundinn dóm Það er afar sérstakt að einstaklingur fái svo þungan dóm bundinn skilorði, þá sérstaklega eftir gróf kynferðisbrot. Í dómnum, sem er frá febrúar 2024, kemur fram að maðurinn hafi játað brot sín skýlaust og hann sé fullur eftirsjár. Hann hafi leitað sér aðstoðar vegna ofbeldishneigðar. Þá mun brotaþoli hafa ávarpað dóminn og sagt hegðun mannsins hafa breyst. Þau hefðu tekið aftur saman, hann orðið góður faðir og maki. Hún vildi að honum yrði gerð refsing en yrði hann dæmdur til fangelsisvistar væru afleiðingarnar verri fyrir hana en manninn þar sem hún myndi líklega missa húsnæði sitt og standa ein eftir. Dómari varð við beiðni brotaþola. Ekki hægt að útiloka þvingun Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi, segir dómara þarna hafa sett alvarlegt fordæmi. „Það sem við erum alltaf að biðja um er að það sé góð þekking innan réttarkerfisins og að það sé áfallamiðuð nálgun. Þarna er ekki hægt að ganga úr skugga um það að vitnisburður brotaþola sé ekki þvingaður. Þess vegna skapar þetta mjög hættulegt fordæmi hvað varðar ofbeldisdóma og kynferðisofbeldisdóma,“ segir Guðný. Allt of algengt Fjölmörg dæmi séu um að gerandi reyni að fá brotaþola til að breyta vitnisburði eða hafa áhrif á dómara. „Því miður er það bara mjög algengt. Við erum að sjá að það er mjög erfitt að ná fram ákærum í þessum málum, hvað þá sakfellingu. Þess vegna skýtur það skökku við að dómurinn sé skilorðsbundinn að fullu. Ég set stórt spurningarmerki við það hvers vegna verið er að skilorðsbinda fyrir svona alvarleg brot. Ég velti fyrir mér fyrir hvern réttarkerfið er að virka, er það fyrir brotaþola eða er það fyrir gerendur?“ spyr Guðný. Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir dóm héraðsdóms hafa borist á borð embættisins, en ákveðið var að áfrýja honum ekki. Vísir/Vilhelm Ákváðu að áfrýja ekki til Landsréttar Á sínum tíma barst dómurinn á borð ríkissaksóknara sem ákvað að áfrýja dómnum ekki, með hliðsjón af óvenjulegri skýlausri játningu og einlægri ósk brotaþola. „Þarna finnst mér kerfið hafa brugðist brotaþola og brugðist börnum. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé eitthvað sem er búið að gerast mjög oft nú þegar og hvort verið sé að koma fólki í verulega hættu,“ segir Guðný.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Tengdar fréttir Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sex til níu ára gömul. Sami maður hlaut fyrir tveimur árum þungan dóm fyrir kynferðisbrot gegn móður stúlkunar en sat aldrei inni, að sérstakri ósk móðurinnar. 14. janúar 2026 23:03 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sex til níu ára gömul. Sami maður hlaut fyrir tveimur árum þungan dóm fyrir kynferðisbrot gegn móður stúlkunar en sat aldrei inni, að sérstakri ósk móðurinnar. 14. janúar 2026 23:03