Forstjóri Deloitte ákærður fyrir kynferðisbrot Sunna Sæmundsdóttir skrifar 15. janúar 2026 14:18 Í ákæru segir að Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte, hafi ekki látið af háttsemi sinni fyrr en vinkona brotaþola reif hann í burtu. vísir/Vilhelm Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot. Honum er gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Brotið getur varðað allt að tveggja ára fangelsi.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 20. janúar næstkomandi. Atvikið sem um ræðir átti sér stað á Hótel Rangá í maí árið 2023. Samkvæmt heimildum voru Þorsteinn og brotaþoli gestkomandi á hótelinu í sitt hvoru lagi og þekktust ekki. Í ákæru er honum gefið að sök að hafa kysst brotaþola gegn hennar vilja. Hann hafi skömmu síðar hlaupið að henni, ýtt henni upp við vegg og sett tunguna upp í munn hennar. Þá hafi hann sett höndina inn fyrir nærbuxur konunnar og káfað á kynfærum hennar innanklæða. Þá segir að ákærði hafi ekki látið af háttseminni fyrr en vinkona brotaþola kom að þeim, reif í jakka Þorsteins og öskraði á hann. Í ákæru segir að háttsemin hafi verið til þess fallin að vekja hjá brotaþola ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð. Málið verður tekið fyrir í lokuðu þinghaldi í Héraðsdómi Reykjaness þann 20. janúar.Vísir/Vilhelm Brotaþoli gerir fimm hundruð þúsund króna miskabótakröfu í málinu. Brotið er talið varða við 199. grein almennra hegningarlaga um kynferðislega áreitni en við því getur legið allt að tveggja ára fangelsi. Héraðsaksóknari krefst þess að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þorsteinn Pétur hefur verið forstjóri Deloitte frá árinu 2019 og er einn eigenda fyrirtækisins. Deloitte er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði endurskoðunar og ráðgjafar og í fyrra störfuðu þar hátt í fjögur hundruð manns. Þá hefur Deloitte meðal annars sinnt fjölda verkefna fyrir hönd íslenska ríkisins.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira