Witkoff segir annan áfanga friðaráætlunarinnar hafinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. janúar 2026 08:53 Vetrarveðrið hefur aukið á hörmungarnar á Gasa og ungabörn látist vegna kuldans. Getty/Anadolu/Saeed M. M. T. Jaras Steve Witkoff, ráðgjafi og erindreki Donald Trump Bandaríkjaforseta, segir annan áfanga friðaráætlunar Trump fyrir Gasa hafinn. Þetta þýddi að áherslan færðist nú frá því að koma á vopnahléi og á afvopnun Hamas, yfirtöku teknókrata á svæðinu og endurreisn.
Fyrsti áfangi 20 liða friðaráætlunar Bandaríkjamanna fól í sér vopnahlé, lausn gísla í haldi Hamas, afturhvarf Ísraelshers að hluta og aukna neyðaraðstoð. Að sögn Witkoff mun annar áfanginn fela í sér afvopnun Hamas og annarra vígahópa. Ef þeir neiti, verði afleiðingarnar alvarlegar. Hamas-samtökin hafa hins vegar fyrir sitt leyti þvertekið fyrir að afvopnast fyrr en í fyrsta lagi eftir formlega stofnun sjálfstæðrar Palestínu. Þá er tæplega hægt að segja að fyrsta áfanganum sé lokið, þar sem báðir aðilar hafa sakað hinn um að brjóta gegn vopnahléinu og ástandið fyrir íbúa er enn langt frá því að vera viðunandi. Hjálpargögn eru enn af skornum skammti og næstum 450 Palestínumenn eru sagðir hafa látist í árásum Ísraels frá því að vopnahléið komst á. Yfirvöld í Egyptalandi, Katar og Tyrklandi, sem hafa komið að því að miðla málum milli Ísraels og Hamas, hafa fagnað stofnun framkvæmdastjórnar teknókrata sem mun hafa umsjón með svæðinu. Þá hafa þau greint frá því að formaður stjórnarinnar verði Ali Shaath, fyrrverandi ráðherra palestínsku heimastjórnarinnar. Stjórnin mun starfa undir eftirliti „friðarstjórnar“ Donald Trump Bandaríkjaforseta. Frekari upplýsinga um stjórnina og fyrirkomulagið er að vænta á næstu dögum, samkvæmt BBC. Bæði Hamas og heimastjórnin hafa lýst yfir stuðningi við framkvæmdastjórnina.
Bandaríkin Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Donald Trump Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Fleiri fréttir „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Sjá meira