Jafnlaunavottunin verður lögð af á þessu ári Jakob Bjarnar skrifar 14. janúar 2026 15:55 Þó þær Þorbjörg Sigríður og Diljá Mist væru á sama máli um að nauðsynlegt væri að afleggja hina gríðarlega kostnaðarsömu jafnlaunavottun féllust þær þó ekki í faðma í fyrsta fyrirspurnartíma þingsins. vísir/vilhelm Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi hvernig gengi að afleggja hina umdeildu jafnlaunavottun. Þorbjörg Sigríður sagði að það yrði á þessu ári. „
Ég fæ linnulausar fyrirspurnir frá óþreyjufullum atvinnurekendum sem hafa ekki undan að svara ýtnum úttektaraðilum og Jafnréttisstofu. Og ég spyr hæstvirtan ráðherra að því hvaða skilaboð hún hafi til þeirra,“ spurði Diljá Mist meðal annars í fyrirspurn sinni. Hún benti á að Þorbjörg Sigríður hafi enda bent á að fyrirtækjum beri að fara eftir gildandi lögum þar til þeim er breytt á þingi. Segir jafnlaunavottun halda launum kvenna niðri Diljá Mist er kunn áhugakona um jafnlaunavottun og hefur ítrekað lagt fram frumvarp um afnám hennar. Og Þorbjörg Sigríður hefur tekið jákvætt í það en nú er annað starfsár ríkisstjórnarinnar hafið og fátt eitt gerist. „Hæstvirtur ráðherra hefur því nú fengið að heyra neikvæðnisraddir sem ég þekki orðið vel, sem saka hana meðal annars um að vera ekki jafnréttissinni. Þeir sem tala þannig loka augunum fyrir því hvernig jafnlaunavottun hefur verið notuð til að halda launum niðri, meðal annars kvenna, eins og við sáum hjá kvenlæknum á Landspítalanum,“ sagði Dilja og bætti við: „Láglaunavottunin.“ Diljá gat ekki á sér setið og taldi einsýnt að Þorbjörg Sigríður hefði þurft að bíta í tunguna á sér við að samþykkja ýmis frumvörp á meðan góð mál hefðu verið í frystikistunni. „Og á meðan er íslenskt atvinnulíf áfram fast í viðjum jafnlaunavottunar og yfirgengilegs kostnaðar af henni. Kostnaður við jafnlaunavottun hleypur á milljörðum Þorbjörg Sigríður dómsmálaráðherra svaraði því til að hún muni flytja frumvarp um jafnlaunavottun því hún hafi hlustað á gagnrýni sem Diljá lýsti. „Þá er ábyrgt að leggja við hlustir og bregðast við.“ Þorbjörg Sigríður vildi þó halda því til haga að jafnréttisparadísin Ísland væri komin á þann stað sem raun ber vitni vegna aðgerða í jafnréttismálum. „En jafnlaunavottunin verður aflögð og við þannig að færa atvinnulífinu mikinn stuðning.“ Þorbjörg Sigríður sagði kostnað við jafnlaunavottunina hlaupa á milljörðum króna en lögin verði aflögð 1. september 2026.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Jafnréttismál Stjórnsýsla Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira