Utanríkisnefnd fundar vegna árásanna í Venesúela Agnar Már Másson skrifar 4. janúar 2026 10:40 Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður utanríkisnefndar. Vísir/Vilhelm Þingmaður Samfylkingarinnar segir að boðað hafi verið til fundar í utanríkismálanefnd Alþingis í fyrramálið til þess að fara yfir stöðuna í Venesúela og meta hvort ástæða sé til að hvetja til umræðu á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um loftárásir Bandaríkjanna í fyrrinótt. Utanríkisráðherra Íslands neitar að fordæma árásina.
Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, greinir frá því á Facebook að fundur hafi verið boðaður í utanríkisnefnd Alþingis kl. 8.30 á morgun, mánudag, vegna ástandsins í Venesúela. Íbúar í höfuðborginni Karakas vöknuðu í fyrrinótt við speningar þar sem Bandaríkin höfðu hafið árás á Venesúela í skjóli nætur. Harðstjórinn Nicolás Maduro, forseti landsins, var tekinn höndum ásamt eiginkonu sinni og þau flutt úr landi til New York þar sem þeirra beið ákæra fyrir fíkniefnahryðjuverk og kókaíninnflutning. Sömuleiðis kom fram í máli Bandaríkjaforseta að Bandaríkin færu nú með stjórn í Venesúela um óákveðinn tíma sem hann útskýrði ekki nánar. Trump sagði að olían myndi „flæða sem skyldi“ og bandarískar olíusamsteypur myndu reisa við olíuframleiðsluinnviði landsins „Þar sem staðan er í örri þróun er mikilvægt að viðbrögð íslenskra stjórnvalda líkt og okkar helstu bandamanna byggist á samráði og varfærni í ljósi loftárása á Venesúela,“ skrifar Dagbjört í Facebook-færslu sinni. Kveðst hún taka undir áhyggjur sem meðal annars Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna og fyrrverandi forsætisráðherra, hefur lýst. „Alþjóðasamfélagið, ekki síst Evrópusambandið, þjónar nú því mikilvæga hlutverki að styðja við friðsamlegar lausnir með aðkomu þeirra sem hlut eiga að máli - í þessu tilfelli venesúelönsku þjóðinni.“ Staða lýðræðislegra stjórnarhátta, mannréttinda, virðingar fyrir alþjóðalögum og sjálfsákvörðunarrétti þjóða á alþjóðasviðinu sé grafalvarleg. „Hér verður ekki gert lítið úr þeirri staðreynd að ógnarstjórn Nicolasar Maduros hefur haldið Venesúelabúum í heljargreipum. En alþjóðalög ber að virða, líkt og komið hefur skýrt fram í máli utanríkisráðherra Íslands,“ skrifar Dagbjört. Í samtali við Vísi í gærkvöldi neitaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra að fordæma aðgerðir Bandaríkjanna. Þorgerður fagnaði brotthvarfi Maduros og hrósaði því hvað aðgerðin hafi verið vel skipulögð. Svandís Svavarsdóttir, fráfarandi formaður Vinstri grænna, brást einnig við og sagði viðbrögð utanríkisráðherra til skammar. „Þessum gildum höfum við Íslendingar og Norðurlandaþjóðir hamrað á, og eigum að gera áfram,“ heldur Dagbjört áfram. Í því ljósi telji hún mikilvægt að utanríkismálanefnd fari vandlega yfir stöðuna á boðuðum fundi og að íslensk stjórnvöld meti hvort ástæða sé til að hvetja til umræðu á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um fyrirliggjandi loftárásir og þá „alþjóðlegu keðjuverkun á ófriði“ sem kann nú að skapast í kjölfarið.
Venesúela Alþingi Bandaríkin Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira