Tóku stig af Liverpool eftir stórbrotið jöfnunarmark í lokin Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. janúar 2026 17:15 Harry Wilson fagnar marki sínu á móti gömlu félögunum í Liverpool með núverandi liðsfélögum sínum Sasa Lukic og Raul Jimenez. Getty/Clive Rose Englandsmeistarar Liverpool fóru aðeins með eitt stig heim frá London í kvöld eftir 2-2 jafntefli á móti Fulham á Craven Cottage í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Það var mikil dramatík í lokin því Cody Gakpo hélt að hann hefði tryggt Liverpool sigurinn með marki í uppbótartíma en Fulham átti lokaorðið því Harrison Reed tryggði Fulham jafntefli með stórkostlegu marki á sjöundu mínútu uppbótartímans. Þetta var annað jafntefli Liverpool í röð á móti liði sem flestir búast við að þeir vinni. Liðið tapar ekki leikjum en er að tapa mikið af stigum. Liðið er engu að síður í fjórða sætinu með þremur stigum meira en Manchester United og fjórum stigum meira en Chelsea sem á leik inni á eftir. Harry Wilson, fyrrum leikmaður Liverpool, slapp í gegn á 17. mínútu eftir stungusendingu frá Raul Jiménez og afgreiddi boltann glæsilega í markið. Honum var fyrst veifað rangstæðan en Varsjáin leiðrétti það. Staðan var 1-0 fyrir Fulham og Liverpool í vandræðum. Cody Gakpo kom boltanum seinna í markið en var réttilega dæmdur rangstæður. Það þurfti enga myndbandsdómara til að úrskurða um það. Varsjáin skoraði líka mark Florian Wirtz sem jafnaði metin á 57. mínútu eftir sendingu frá Conor Bradley. Það munaði ótrúlega litlu að hann væri rangstæður en sá þýski slapp með skrekkinn. Gakpo hélt að hann hefði skorað sigurmarkið á fjórðu mínútu í uppbótartíma þegar hann kom boltanum í netið á fjærstönginni eftir fyrirgjöf frá Jeremie Frimpong. Harrison Reed átti lokaorðið þegar hann skoraði stórskotlegt jöfnunarmark með skoti af löngu færi upp í fjærskeytin. Enski boltinn Fulham FC Liverpool FC