„Hef á tilfinningunni að hann hafi talað af sér þarna“ Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2026 08:38 Er Ruben Amorim á förum frá Manchester United? Getty/Robbie Jay Barratt Arnar Gunnlaugsson segir að Rúben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, hafi eflaust ígrundað vel og vandlega ummælin sem hann lét falla á blaðamannafundi í gær. Ummælin hafa vakið mikla athygli og spurningar um framtíð Amorim.
Portúgalinn lagði ríka áherslu á það á fundinum, eftir 1-1 jafnteflið við Leeds í gær, að hann væri stjóri en ekki þjálfari. Þannig yrði það „næstu 18 mánuði eða þar til að stjórnin ákveður að breyta til,“ sagði Amorim. „Ég mun ekki hætta. Ég mun sinna mínu þar til að annar maður kemur í minn stað,“ bætti hann við en kvaddi svo fundinn áður en hægt var að spyrja hann frekar út í þessi ummæli. Ummælin voru til umræðu í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport í gærkvöld og má sjá brot úr þættinum hér að neðan. Klippa: Messan - Ummæli Rubens Amorim „Þetta er kannski byrjun á öðru Maresca-ævintýri,“ sagði Arnar og vísaði í brotthvarf Enzo Maresca frá Chelsea, eftir ósætti við stjórnendur. „Það er augljóslega einhver pirringur á bakvið tjöldin og einhver valdabarátta. Hann er að nota þessa fundi til að senda skilaboð. Því miður fyrir þessa þjálfara, hvort sem skilaboðin eru rétt eða röng, þá er yfirleitt bara einn sigurvegari í svona. Þetta endar með því að þjálfarinn er látinn fara. Ef þú ert alltaf að skjóta á yfirmann þinn í gegnum fjölmiðla þá skiptir ekki máli hversu geðþekkur þú ert, þá verður þú látinn fara,“ sagði Arnar. Af hverju ætti þá að dæla inn leikmönnum og gefa honum fullt traust? Amorim virðist ósáttur við að fá ekki að hafa meiri áhrif á leikmannakaup United og það eru vísbendingar um vaxandi spennu á milli hans og yfirmanns knattspyrnumála, Jason Wilcox. „Það er áhugavert að hann nefni þarna Tuchel, Conte og Mourinho. Hann er ekki á sama stalli og þeir en er samt að biðja um ákveðna virðingu. Svo veit ég ekki hvort hann er bara að tala um menn á bakvið tjöldin hjá United eða bara almennt hvernig talað er um hann, hvernig spurningar hann fær á blaðamannafundum. Mig vantar aðeins meira samhengi,“ sagði Albert Brynjar Ingason. „Hann er ráðinn þarna inn til að byggja upp og er svo fastheldinn á sitt leikkerfi. Ef hann er að meina það sem hann segir þarna, að það séu átján mánuðir eftir af samningnum og svo sé hann bara farinn, af hverju ætti þá að fara að dæla inn einhverjum leikmönnum og gefa honum fullt traust?“ spurði Albert og Arnar svaraði: „Ég hef á tilfinningunni að hann hafi talað af sér þarna.“ Umræðuna í heild má sjá í spilaranum að ofan.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira