Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Hegðun fullorðins karlmanns eftir leik Liverpool og Nottingham Forest á Anfield í gær hefur valdið hneykslun en hann reyndi að hrifsa treyju Alexanders Isak af tveimur strákum, eins og sjá má á myndbandi. Enski boltinn 30.8.2026 08:03
Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Cody Gakpo hefur samþykkt að ganga í raðir Manchester City frá Liverpool og nú er þess beðið að félögin komist að samkomulagi um kaupverð. Enski boltinn 29.8.2026 20:34
Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Alisson, markvörður Liverpool, sparkaði í spjald og braut það í bræði sinni eftir 2-2 jafnteflið við Nottingham Forest á Anfield í dag. Mörkin og helstu atvik úr öllum fjórum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi. Enski boltinn 29.8.2026 19:33
Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Liverpool mun ekki geta mætt Real Madrid á heimavelli sínum Anfield í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu á þessu tímabili. Reglur keppninnar koma í veg fyrir að slíkt geti gerst. Fótbolti 26. ágúst 2026 11:25
Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Olivia Smith varð í fyrra fyrsta fótboltakonan sem seld er fyrir eina milljón punda, þegar Arsenal keypti hana af Liverpool. Hún á fjölbreyttan íþróttabakgrunn, meðal annars vegna eineltis sem hún sætti sem barn heima í kanadíska smábænum Whitby. Enski boltinn 26. ágúst 2026 11:02
Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Jákvæður tónn er í viðræðum Liverpool við Paris Saint-Germain varðandi möguleg kaup á franska kantmanninum Bradley Barcola. Bjartsýni ríkir gagnvart því að hægt verði að ná samkomulagi um félagsskipti leikmannsins. Enski boltinn 26. ágúst 2026 08:32
Cody Gakpo orðaður við Manchester City Manchester City hefur áhuga á því að fá Cody Gakpo frá Liverpool. Gakpo skrifaði undir nýjan samning fyrir ári sem gildir til 2030. Enski boltinn 24. ágúst 2026 22:32
Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Harvey Elliott var ekki í leikmannahóp Liverpool í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar og má því búast við að hann sé á förum frá félaginu. Liverpool hefur þó ekki enn fengið tilboð í leikmanninn. Enski boltinn 24. ágúst 2026 21:47
Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Bjarni Guðjónsson auglýsir eftir knattspyrnustjórum sem bera með sér að vera meiri foringjar en þeir sem nú starfa í ensku úrvalsdeildinni. Hann efast þannig um að Andoni Iraola hafi þau persónueinkenni sem til þurfi til að stýra stjörnuleikmönnum Liverpool. Enski boltinn 24. ágúst 2026 15:32
Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports og fyrrverandi leikmaður Manchester United, telur Manchester City og Liverpool ekki geta barist um Englandsmeistaratitilinn á þessu tímabili. Enski boltinn 24. ágúst 2026 08:30
Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær. Boðið var upp á mikla dramatík er Manchester City vann Bournemouth, Liverpool og Newcastle United mættust í hörku leik sem bauð upp á miklar senur í uppbótartíma á meðan að Aston Villa fékk skell á útivelli gegn Brighton. Öll mörkin frá því í gær má sjá í þessari frétt. Enski boltinn 24. ágúst 2026 08:09
„Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Dominik Szoboszlai sá til þess að Liverpool fengi stig úr leiknum gegn Newcastle United á St James' Park í dag. Hann jafnaði úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Ungverjinn sagði að Liverpool hefði sýnt baráttuanda í leiknum í dag. Enski boltinn 23. ágúst 2026 18:14
Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Dominik Szoboszlai tryggði Liverpool jafntefli gegn Newcastle United með marki úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur á St James' Park í dag, 2-2. Enski boltinn 23. ágúst 2026 17:30
Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Manchester City vann 2-1 endurkomusigur gegn Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Miðverðirnir Marc Guehi og Josko Gvardiol stigu upp fyrir City. Enski boltinn 23. ágúst 2026 12:33
Curtis Jones farinn til Inter Curtis Jones hefur yfirgefið uppeldisfélagið Liverpool og gengið í raðir Inter á Ítalíu. Þetta hefur verið staðfest eftir að enski miðjumaðurinn gekkst undir læknisskoðun í Mílanó. Enski boltinn 21. ágúst 2026 18:51
BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool BBC hefur birt skemmtilegt innslag frá árinu 1964 þegar að KR mætti Liverpool í Evrópukeppni félagsliða. Kunnuglegum andlitum bregður fyrir, meðal annars Ellert B. Schram, þá leikmanni KR og Alberti Guðmundssyni, fyrsta atvinnumanni Íslands í knattspyrnu. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 14:30
Liverpool fær höfnun frá Brighton Liverpool hefur fengið höfnun frá Brighton á 50 milljóna punda tilboði í gambíska kantmanninn Yankuba Minteh. Enski boltinn 20. ágúst 2026 22:46
Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Eftir mikil fjárútlát í fyrrasumar hefur Liverpool haft mun hægara um sig á félagaskiptamarkaðnum í sumar. Sérfræðingar Sunnudagsmessunnar gefa félaginu falleinkunn eftir viðskipti sumarsins en enn er tími til að breyta þeirri einkunn. Enski boltinn 20. ágúst 2026 14:17
Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Liverpool hefur samþykkt 35 milljón evra tilboð Inter Milan í Curtis Jones. Hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool. Enski boltinn 20. ágúst 2026 12:03
Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Kanadíska knattspyrnukonan Rylee Foster er nýr leikmaður kvennaliðs Everton í ensku úrvalsdeildinni sem er sérstaklega athyglisvert vegna ástar hennar á öðru ensku félagi frá Bítlaborginni. Enski boltinn 17. ágúst 2026 16:31
Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Franski miðvörðurinn Jérémy Jacquet lék loksins fyrsta leikinn sinn með Liverpool í kvöld og skoraði annað markið í sigri á Como í æfingaleik á Anfield. Enski boltinn 16. ágúst 2026 19:14
Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik Liverpool og Como gerðu markalaust jafntefli, 0-0, í fyrri af tveimur æfingaleikjum liðanna í dag. Enski boltinn 16. ágúst 2026 12:44
Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Hver eru hörmulegustu félagsskipti fótboltans á þessari öld? Peter Graulund, knattspyrnusérfræðingur TV 2 Sport, setti saman slíkan lista yfir verstu félagaskipti á þessari öld. Enski boltinn 15. ágúst 2026 08:01
Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Fjárfestahópur, með Jeff Bezos innanborðs, hefur gengið frá kaupum á einum þriðjungi í enska fótboltafélaginu Liverpool. Enski boltinn 14. ágúst 2026 16:24
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn